ÍBV hefur fengið töluvert af ábendingum frá gestum sínum undanfarin ár um að fólk vilji annað fyrirkomulag á úthlutun á hvítu tjöldunum. ÍBV auglýsti eftir hugmyndum af fyrirkomulagi í haust og komu nokkrar hugmyndir og er ein þeirra var sú að fólk sækir um lóðir fyrir tjöldin sín og verður sú leið farin í ár.
Þegar sótt er um þarf fólk að vita breiddina á tjaldinu sínu og vera með kortaupplýsingar. Hægt er að sækja um á vefsíðunni www.dalurinn.is undir mínar pantanir (efst í horninu). Ekki er hægt að sækja um nákvæmar staðsetningar eins og að vera þriðja tjald í Sjómannasundi. Fólk sækir um götu og hvort það vilji vera hægra eða vinstra megin í henni, einnig er hægt að biðja um að fá að vera fremst í götu.
Dóra Björk framkvæmdastjóri ÍBV sagði að fyrirkomulagið væri ekki þannig að fyrstur kemur fyrstur fær, „Nei kerfið vinnur ekki þannig úr umsóknunum heldur verður úthlutunin tilviljunarkennd en auðvitað verður reynt að fólk fái það sem það biður um.“
Af hverju þarf að gefa upp kortaupplýsingar? Það kostar 15.000 per lengdarmeter að nýta ekki lóðina sem maður fær úthlutað. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að margir sæki um lóð fyrir sama tjaldið. Það kemur fram á síðunni hvað þið þurfið að borga mikið ef þið nýtið ekki lóðina en ef þið mætið með súlurnar ykkar í dalinn þá verður engin kostnaður við úthlutinina.
Hver úthlutar lóðunum? Forit hannað af Magnúsi Gíslasyni sér um úthlutinina.26. til 28. Júlí þarf að staðfesta úthlutinina, af hverju er það gert? Þetta er gert til að koma í veg fyrir að það verði eyður í götunum og einnig til að finna út hverjir þurfa að borga og hvejir ekki. Þessi staðfesting fer fram á síðunni www.dalurinn.is undir mínar pantanir þ.e. sama leið og farið var til að panta lóð.
„Við í nefndinni vonumst til að þetta fyrirkomulag muni ganga upp en við gerum okkur grein fyrir að það geta orðið smá hnökrar á kerfinu fyrst um sinn. Ef þið eruð með einhverjar spurningar þá endilega sendið okkur línu á info@dalurinn.is,“ sagði Dóra Björk