Orðið töluvert grunnt í Landeyjahöfn
herjolfur_lan_062020
Herjólfur siglir í Landeyjaghöfn. Eyjar.net/TMS

Dýpið í og við Landeyjahöfn var mælt fyrr í dag og eins og myndin hér fyrir neðan sýnir er orðið töluvert grunnt í höfninni. Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir að aðstæður í fyrramálið til siglinga til/frá Landeyjahöfn séu ekki hagstæðar vegna aðstæðna í höfninni. Því siglir Herjólfur fyrri ferð dagsins til Þorlákshafnar. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og frá Þorlákshöfn kl. 10:45.

Varðandi siglingar eftir hádegi á morgun, verður gefin út tilkynning fljótlega eftir hádegi.  Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Nýjustu fréttir

Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.