�?vild, arður og réttlæti.
“En maður les líka á milli línanna hjá sumum að þar skín í gegn óvildin í garð sjávarútvegsins og þeirra fyrirtækja sem stunda útgerð á Íslandi.�?�
�?etta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali sem birtist við hann í Morgunblaðinu 20. ágúst sl. þar sem hann ræðir um Rússadeiluna svonefndu.
Og í viðtalinu segir Bjarni einnig:
�??Að ná höggi á fiskveiðistjórnunarkerfið er orðið sjálfstætt markmið hjá þessu fólki. En fiskveiðar og arðbært stjórnkerfi er það sem hefur komið undir okkur fótunum, með þessu höfum við byggt upp það samfélag sem við búum í. �?að er ótrúlega dapurlegt að lesa þetta.”
�?að er því miður of mikið til í því hjá hæstvirtum fjármálaráðherra að óvild í garð sjávarútvegsfyrirtækja er allt of algeng og allt of mikil meðal fólks. �?að er mjög skaðlegt hugarfar og engum til gagns. En það er kolrangt hjá ráðherra ef hann heldur að óvildin sé tilkomin vegna þess að stjórnkerfi fiskveiða er arðbært.
Ástæða þessarar óvildar er augljós og einföld og hún er sú að hann og aðrir stjórnmálamenn sem hafa ekki staðið sig í að tryggja að þjóðin geti treyst því að hún eigi fiskveiðiauðlindirnar og fái að njóta arðsins af þeim. Og fjármálaráðherra hefur raunar verið í liði með þeim sem hafa viljað tryggja að almenningur í landinu fái bara molana sem til falla þegar sérvaldir éta kökuna.Til að breyta þessu neikvæða hugarfari þarf að gera tvennt. �?að þarf að setja skýrt ákvæði í stjórnarskrá um að þjóðin eigi fiskveiðiauðlindirnar. Og það þarf að bjóða réttinn til að nýta auðlindirnar upp á jafnræðisgrundvelli. Aðeins þannig verður réttur þjóðarinnar til þessara auðlinda og arðsins af þeim tryggður í orði og í verki. Verði þetta hvorugt gert mun fólkið í landinu aldrei verða sátt og sem betur fer ekki. �?að á ekki og má ekki verða sátt um óréttlæti.
�?etta verður fjármálaráðherra að fara að skilja og það er brýnt að það gerist sem fyrst því að óánægjan sem er um þessi mál hjá þjóðinni er ekki bara skaðleg fyrir sáttina í samfélaginu. Hún er mjög skaðleg fyrir sjávarútvegsfyrirtækin og alla þá sem hjá þeim starfa, fjárhagslega hagsmuni þeirra og allrar þjóðarinnar.
�?að verður enn þá óásættanlegra hversu neikvæð umræðan um sjávarútveginn oft er þegar litið er til þess hversu margt í sambandi við hann ætti að vera okkur tilefni til að gleðjast og fyllast stolti. Framleiðsla á næringarríkum mat í heimi þar sem mikil þörf er fyrir holla fæðu. Og aðrar fiskveiðiþjóðir horfa mjög til okkar því að okkur hefur tekist mjög margt miklu betur en langflestum. Fiskistofnarnir okkar eru nýttir með ábyrgum hætti, sjávarútvegur skilar miklum arði og framleiðnin í honum er mjög góð miðað við það sem gerist í öðrum löndum.
Hagfræðilegar rannsóknir sýna að sjómennirnir okkar eru einhverjir þeir hæfustu og duglegustu í heimi og fiskverkunarfólkið okkar skilar hágæða afurðum. Er ekki óþolandi að láta allt þetta dugmikla fólk þurfa að hlusta sí og æ á neikvæða umræðu um greinina sem það starfar í?
Mér finnst það.
Íslenskur sjávarútvegur á auðvitað að vera og hefur verið mjög jákvæður þáttur í sjálfsmynd okkar. �?etta er atvinnugreinin sem kom okkur almennilega á lappirnar. �?að er mjög skaðlegt fyrir okkur öll hvernig deilur um úthlutun aflaheimilda og skiptingu arðsins af nýtingu fiskveiðiauðlindanna hafa skaðað ímynd starfsstétta sem tengjast sjávarútvegi og byggða sem mikið byggja á útgerð. Og leitt til hugarfars og umræðna sem fjármálaráðherra kallar óvild í garð fyrirtækja í sjávarútvegi.
�?essu verður að breyta og eina leiðin til þess er að þjóðin geti treyst því að hún eigi fiskveiðiauðlindirnar og njóti þess arðs af þeirri eign sinni sem henni ber. Við þurfum að hafa það skýrt og skorinort í stjórnarskrá og það þarf að bjóða nýtingarréttinn upp.
�?egar við höfum komið þessu í verk munu fyrirtæki í sjávarútvegi njóta velvildar þjóðarinnar allrar.

Nýjustu fréttir

Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.