Páll gefur ekki kost á sér
Páll: Þetta geri ég sáttur, glaður og stoltur með þann árangur sem náðst hefur í rekstri og stjórn bæjarins þau fjögur ár sem ég hef setið í bæjarstjórn.

Páll Magnússon, bæjarfulltrúi H-listans og forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn þegar kjörtímabilinu lýkur í vor. Hann segist stíga til hliðar sáttur og stoltur af þeim árangri sem náðst hafi í rekstri og stjórn bæjarins á undanförnum árum. Pistil Páls má lesa hér að neðan.

Góðir Eyjamenn og annað fólk!

„Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn Vestmannaeyja þegar kjörtímabilinu lýkur nú í vor. Þetta geri ég sáttur, glaður og stoltur með þann árangur sem náðst hefur í rekstri og stjórn bæjarins þau fjögur ár sem ég hef setið í bæjarstjórn – og raunar öll átta árin sem bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey hefur verið í forystu hér í bænum,“ segir Páll Magnússon, bæjarfulltri H-listans og forseti bæjarstjórnar á Fésbókarsíðu sinni.

„Ég er þakklátur fyrir þann stuðning sem bæjarbúar hafa sýnt H-listanum – og félögum mínum í bæjarstjórn fyrir að treysta mér til að vera forseti bæjarstjórnar á meðan ég hef setið þar.
Þetta er ekki kveðjustund – það eru tæpir þrír mánuðir eftir af kjörtímabilinu – og ég mun gera nánari grein fyrir því sem áunnist hefur þegar nær dregur. Þangað til: Takk fyrir mig – og áfram Vestmannaeyjar!“

Nýjustu fréttir

Jóna Sigríður gefur ekki kost á sér áfram
Páll gefur ekki kost á sér
Íris gefur ekki kost á sér áfram hjá Fyrir Heimaey
Sækist eftir 2. sæti
Þetta snýst um fólkið mitt og bæinn minn
Stormurinn varð að lagi
Þuríður Matthíasdóttir hannar einstakt skart  
Óeigingjarnt og öflugt starf í þágu Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.