Páll Magnússon - Stóru málin í Eyjum
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú setið í ríkisstjórn í rúm 3 ár. Á þessum skamma tíma hefur orðið alger viðsnúningur í rekstri ríkissjóðs og á lífsgæðum almennings. Sá viðsnúningur á rætur sínar annars vegar í hagfelldum ytri aðstæðum og hins vegar í skynsamlegri forystu Sjálfstæðisflokks í ríkisstjórn. Hallarekstri var snúið við og skuldir greiddar niður. �?að eru því forréttindi fyrir nýja frambjóðendur eins og mig að finna og vita að nú gefst aukið svigrúm til enn frekari uppbyggingar grunnþjónustu ásamt áframhaldandi niðurgreiðslu skulda, haftalosunar, hagræðingar í ríkisrekstri og að hamla útþenslu ríkisútgjalda.
Heilbrigðis- og velferðarmál
Heilbrigðismál brenna eðlilega á landsmönnum og sannarlega er þjóðarsátt um áframhaldandi uppbyggingu í þeim málaflokki. Við Sjálfstæðismenn erum stolt af því að hafa á kjörtímabilinu aukið framlög til heilbrigðismála verulega og þjónustuna þar með. Á þessu ári verða útgjöld um 38,5 milljörðum hærri en 2013 þegar vinstri ríkisstjórnin fór frá. Hér í Eyjum er enn mikið verk að vinna og mikilvægt að gefast ekki upp fyrr en tryggð hefur verið t.d. full þjónusta við fæðandi mæður, aukin aðkoma sérfræðilækna og áframhaldandi efling heilsugæslu.
Menntamál
Tengsl rannsókna, menntunar og vísinda við nýsköpun eru grundvöllur hagvaxtar. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur aukin áhersla verið lögð á rannsóknir og vísindi og mikilvægt að áfram verði haldið á þeirri braut. Menntakerfið þarf að bregðast hratt við þeim áskorunum sem felast í tækniframförum upplýsingaaldar. Mannauður skiptir höfuðmáli í þjóðfélagi sem í síauknum mæli byggir á þekkingu. Hér í Eyjum hafa stór skref verið stigin hvað þetta varðar og dugir þar að vísa til hins nýja háskólanáms í haftengdri nýsköpun, mikilli eflingu �?ekkingarsetursins, tengslum FABLAB við Framhaldsskólann og fleira mætti nefna. Á sama hátt þurfum við í sameiningu að efla á ný iðnmenntun í Vestmannaeyjum og sannarlega verður það meðal áherslumála á komandi kjörtímabili.
Samgöngur og aðrir innviðir
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð verið sá flokkur sem myndalegast hefur staðið að hvers konar inniviðauppbyggingu. Við Sjálfstæðismenn viljum veita stórauknu fjármagni til viðhalds á vegakerfi landsins. Fjárfesta þarf í samgöngumannvirkjum, flutningskerfi raforku, fjarskiptum og löggæslu. Reykjavíkurflugvöllur er og verður óskertur í Vatnsmýri þar til betri kostur finnst. Hér í Vestmannaeyjum hefur staðan í samgöngumálum verið algerlega óboðleg í hátt í áratug. Landeyjahöfn hefur reynst erfiðari í notkun en nokkurn óraði fyrir og illu heilli hefur það dregist von úr viti að smíða nýja ferju. Nú sér fyrir endann á pattstöðunni og innan tveggja ára verður ný ferja komin í gagnið. Sú framkvæmd er nauðsynleg en ekki nægjanleg til að tryggja bót mála. Eftir stendur að vinna þarf höfnina út úr byrjunarörðugleikum og má það ekki dragast. Tafarlaust þarf síðan að bæta þjónustu við heimamenn svo sem með betra bókunarkerfi, sama fargjaldi í �?orlákshöfn og Landeyjahöfn og fl. Flugið er okkur Eyjamönnum líka mikilvægt og hvergi má gefa eftir í baráttunni fyrir eflingu þess.
Sjávarútvegsmál
Frá því að ból var fyrst byggt í Vestmannaeyjum hafa íbúar átt lífsgæði sín undir því hvernig gengur til sjávar. Fyrirtæki og íbúar hafa fyrir löngu náð að aðlaga sig að duttlungum nátúrunnar. �?gnin nú eru duttlungar stjórnmálamanna sem skirrast hvergi í ofsóknum gegn þessari grundvallaratvinnugrein í sjávarbyggðum. Nú sem fyrr er mikilvægt að tryggja sem mestan og bestan stöðugleika og núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi hefur í grundvallaratriðum reynst Íslendingum svo farsælt að þeir hafa nú mikinn arð af atvinnugrein sem aðrar þjóðir niðurgreiða. �?að er óendanlega mikilvægt fyrir sjávarbyggð eins og Vestmannaeyjar að hrinda þessum árásum á kerfið og að það sé látið af vitleysislegum hugmyndum um að kollvarpa því.
Ágætu Eyjamenn, í prófkjöri fyrir fáeinum vikum studduð þið mig svo rösklega að eftir var tekið. Stuðningur ykkar tryggði mér fyrsta sætið á lista okkar Sjálfstæðismanna. �?g tek því umboði mjög alvarlega og heiti því að vinna að hagsmunum Eyjamanna og allra annarra sem ég er kjörinn til að vinna fyrir. �?g bið ykkur um standa með mér áfram – líka núna í seinni hálfleik – og mæta á kjörstað á laugardaginn og setja X við D.
Páll Magnússon
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært
Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri
Hjalti læknir og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Stormur á Stórhöfða
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.