�?að er alveg sama hvar borið er niður í dag og hvaða alþjóðlegu mælikvarðar eru skoðaðir – Ísland skorar alltaf hæst: ríkissjóði hefur verið snúið úr gegndarlausum hallarekstri í afgang; atvinnuleysi er nú bara tölfræðilegt, rúmlega 2%, sem þýðir á mannamáli að það er ekkert atvinnuleysi; hagvöxtur á Íslandi hefur verið meiri að undanförnu en í öllum þeim löndum sem við notum til samanburðar – og kaupmáttur launa hefur aukist meira síðustu misserin en dæmi eru um á svo skömmum tíma um langt skeið.
�?essi upptalning gæti haldið áfram lengi enn – og er einn samfelldur vitnisburður um hversu vel hefur tekist með stjórn efnahagsmála á því kjörtímabili sem er að ljúka. En við vitum líka að það þarf að gera betur á ýmsum sviðum. Hér á okkar slóðum – í Suðurkjördæmi – eru það innviðabrestirnir sem eru mest aðkallandi. �?eir eru samstofna um allt kjördæmið – vestan frá Reykjanesi og austur á Höfn – og á öllu þessu svæði nefna menn fyrst tvennt: samgöngumál og heilbrigðisþjónustu. �?ar á eftir kemur svo löggæslan. Sumir þessir brestir eiga sér rætur í groddalegum niðurskurði í kjölfar hrunsins, aðrir eiga sér lengri sögu en allir verða þeir augljósari núna þegar fjöldi erlendra ferðamanna í kjördæminu hefur margfaldast á aðeins nokkrum árum.
Forgangsmálin eru mismunandi eftir svæðum og stöðum í kjördæminu en öll af sömu rótum runnin. �?essa bresti munum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja höfuðáherslu á að laga á næsta kjörtímabili. Forsendan fyrir því að það sé hægt, er að áfram haldi sú jákvæða þróun í efnahagsmálum og meðfylgjandi stöðugleiki sem ég gat um hér í byrjun.
En einmitt þar liggur hundurinn grafinn. �?að er alls ekki víst að svo verði – og raunar fremur ólíklegt miðað við hina pólitísku stöðu í dag. �?að má segja að það hafi verið heiðarlegt hjá vinstri flokkunum undir forystu Pírata að hefja stjórnarmyndunarviðræður um síðustu helgi – sex dögum FYRIR kosningar. �?að hefði að vísu verið lýðræðislegra að hinkra eftir kosningaúrslitunum en látum það vera.
�?etta útspil Pírata og viðbrögð hinna vinstri flokkanna við því hafa einfaldað og auðveldað val kjósenda á laugardaginn. �?að eru bara tveir kostir í boði: fjögurra eða jafnvel fimm flokka vinstri stjórn undir forystu Pírata – eða ríkisstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins.
Við vitum hvað Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir; hluta af því nefndi ég í byrjun þessarrar greinar. En sem betur fer vitum við líka hvað vinstri flokkarnir, sem hittust um helgina, standa fyrir. �?eir stjórna nefnilega allir saman einu verst rekna sveitarfélagi á Íslandi: Reykjavík. Á nýjum lista yfir 20 best reknu sveitarfélög á Íslandi tróna tvö á toppnum: Vestmannaeyjar og Grindavík. Tvennt af því sem þau eiga sameiginlegt er að þau eru bæði í Suðurkjördæmi og í báðum eru Sjálfstæðismenn við völd. Reykjavík kemst ekki einu sinni inn á þennan topp 20 lista. Tilviljun? �?g held ekki! Og við vitum meira. Við vitum að ef við leggjum saman megináherslur þessarra flokka ganga aftur allir gömlu draugarnir frá Jóhönnu og Steingrími J.: skattahækkanir á einstaklinga og atvinnulíf; Evrópusambandið; niðurbrot á fiskveiðistjórnunarkerfinu og óvissuferð inn í uppboðsleiðina; niðurrif á stjórnarskránni sem ekkert hefur gert af sér – og svona mætti áfram telja.
Á laugardaginn er sem sagt hægt að velja á milli áframhaldandi framfara og efnahagslegs stöðugleika undir forystu Sjálfstæðisflokksins – eða fjölflokka vinstri óvissuferðar undir forystu Pírata.
�?g treysti á dómgreind kjósenda í Suðurkjördæmi. �?g treysti á að þeir kjósi með með sjálfum sér – fyrir eigin velferð og öryggi. �?g treysti á að þeir hafni þessu vinstra kraðaki; sporin hræða. �?g treysti því að þeir kjósi Sjálfstæðisflokkinn!
Páll Magnússon
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi