Páll Marvin: Ey stökkpallur inn á stóra sviðið
EY vekur athygli
�?að er ánægjulegt að markaðsátakið EY vekur athygli og knýr fram viðbrögð enda kannski skiljanlegt þar sem þetta er í fyrsta skipti bærinn ræðst í átak af þessu tagi. �?að er einnig gott að fá ábendingar um hvað er hægt að bæta. Auðvitað eru ekki alltaf allir sammála um aðferðafræðina og síðan eru sumir bara í þannig gír eða úr garði gerðir að þeir ætla rífa niður, sama hvað. Líklega hefði ekki skipt neinu máli hvernig þetta verkefni hefði farið af stað þessir aðilar hefðu ekki getað annað en rifið það niður.
En gagnrýni á fyllilega rétt á sér og ber ávallt að taka til skoðunar, þó svo að tilgangur hennar sé ekki alltaf hvatning til að gera betur.
Vonandi stökkupallur inn á stóra sviðið
Eyjarnar búa yfir fagfólki á mörgum sviðum, fagfólki sem er vel samkeppnishæft innanlands og jafnvel á alþjóðavettvangi. Verkefnið EY er einmitt ætlað að styðja við bakið á þessu fólki, setja það í forgrunn, kynna það fyrir Vestmannaeyingum, landsmönnum og síðan alþjóð. Verkefnið á ekki að hjálpa þessu fólki með því að kaupa einskiptis þjónustu af viðkomandi, heldur að búa til jarðveg og grunn þar sem þetta fólk, hvort sem það er kokkur, tónlistarmaður, ljósmyndari, jógakennari eða annar fagaðili fær stökkpall inn á stóra sviðið.
�??Gagnrýni á að við séum ekki ráða heimamenn í verkefnið er gagnrýni sem við tökum alvarlega, því Vestmannaeyjabær hefur ávallt litið til heimamarkaðar fyrst þar sem því er við komið. Bæjarstjórn og við sem höfum komið að verkefninu fórum í gegnum þessa umræðu og áttum von á gagnrýni af þessu tagi ef sú leið yrði valin að leita út fyrir Eyjarnar. Niðurstaðan varð hinsvegar sú að við töldum rökin fyrir því sterkari og völdum því utanaðkomandi auglýsingastofu til að setja verkefnið af stað með okkur. Hlutverk auglýsingastofunnar var að hanna átakið og stýra aðgerðum en líkt og Eyjamaðurinn og reynslubolti í auglýsingabransanum, Hlynur Guðlaugsson, bendir á í umræðum á fésbókinni þá er engin stofa í Eyjum sem hefur reynslu og þekkingu til að annast slíkt. Hinsvegar hefur átakið notað ljósmyndara, kvikmyndatökuaðila og aðra fagmenn frá Eyjum til hinna ýmsu verkefna og mun gera það áfram.
Ey ætlað að styðja við útgáfustarf í Eyjum
Nokkuð hefur verið rætt um að Vestmannaeyjabær ætli í samkeppni við aðila á markaði í Vestmannaeyjum. Ábyrgðin á þeim misskilningi liggur öll hjá okkur sem stýrt höfum verkefninu. Í ferlinu hefði fyrr þurft að ræða við til að mynda þá sem eru í útgáfustarfi og útskýra betur að allt sem gert verður er til að styðja við það góða starf sem hér er unnið en ekki að valda neikvæðum áhrifum. �?annig er til að mynda stefnt að matarhátíðinni �??Gúrmey�??án þess að Vestmannaeyjabær ætli að opna veitingastað. Á sama hátt er vilji til að styðja við umfjöllun um allt það jákvæða sem er að gerast án þess að Vestmannaeyjabær ætli sjálfur í viðamikið útgáfustarf. �?eir aðilar sem staðið hafa í eldlínunni á þeim vettvangi eiga heiður skilið fyrir metnaðarfullt starf í tugi ára og rétt eins og �??Gúrmey�?? er ætlað að standa með veitngastöðum er �??EY�?? ætlað að styðja við útgáfustarf hér í okkar góða bæ. �?ótt ekki séu nema fáeinir dagar síðan verkefni var kynnt er þegar kominn vísir að samstarfi þar að lútandi sem bæjarbúar munu vonandi njóta góðs af.
Við hönnun átaksins var farin sú leið að fara ekki í birtingar á dýrum sjónvarpsauglýsingum. Slíkar herferðir eru auðvitað góðar og gildar en þær kosta mikið í bæði framleiðslu og birtingu. �?ess í stað var valið að nota vefinn og samfélagsmiðlana. Samfélagsmiðlarnir eru vand með farnir en með því að fara þá leið er verkefnið sett í hendurnar á bæjarbúum. Átakið hefur hinsvegar fengið mjög góðar móttökur enda vandað til verka á öllum sviðum.
Slagorðið Heimaey best
Bent hefur verið m.a. á að það hefði átt að styðjast við slagorðið “Til Eyja” og er það vel, sú hugmynd líkt og flest allar hugmyndir sem hafa verið ræddar í tengslum við átakið eru góðra gjalda verðar. En það slagorð rúmast vel inni í orðaleikjunum í tengslum við EY merkið og t.d. ef Markaðsdeild Eimskipa eða aðrir vilja nota Til EYja og tengja sig við átakið þá er það velkomið og einfalt að tengja þar á milli. Slagorð átaksins er hinsvegar Heimaey best og er þar bæði verið að vísa í hið augljósa, þ.e. að Heimaey er best og síðan á orðatiltækið heima er best. En allt er þetta leikur að orðum sem heimamenn, hönnuðir og markaðsmenn fyrirtækja í Eyjum geta nýtt sér í markaðssetningu á sinni vöru og þjónustu.
Páll Marvin Jónsson�??

Nýjustu fréttir

Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga lét til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.