Pálmi Harðarson, aðstoðaraðstoðarþjálfari B-liðs ÍBV í handbolta, er genginn í raðir HK. Liðin tvö mætast einmitt í Eimskipsbikarnum í kvöld en samkvæmt heimildum Eyjafrétta.is eru kaup HK á Pálma, liður í leikmannaskiptum félaganna. Þannig mun Erlingur Richardsson, þjálfari HK spila með B-liðinu og Pálmi með HK.