Ráðleggur 6% aukningu á aflamarki þorsks og 20% á ýsu
13. júní, 2017
Í dag kynnti Hafrannsóknastofnun úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu er lagt til aflamark fyrir á fjórða tug stofna, sem miðast við varúðarsjónarmið og hámarksnýtingu til lengri tíma.
Hafrannsóknastofnun ráðleggur 6% aukningu á aflamarki þorsks byggt á aflareglu stjórnvalda, úr 244.000 tonnum í 257.572 tonn fyrir fiskveiðiárið 2017/2018. Samkvæmt stofnmatinu í ár stækkaði viðmiðunarstofninn lítillega milli áranna 2016 og 2017. Búist er við að þegar þorskárgangarnir frá 2014 og 2015 komi inn í viðmiðunarstofninn 2018 og 2019 stækki hann nokkuð frá því sem nú er. Fyrsta mæling á árgangi 2016 bendir til að hann sé undir meðaltali.
Samkvæmt aflareglu stjórnvalda er ráðlagt aflamark ýsu 41.390 tonn fyrir fiskveiðiárið 2017/2018, sem er 20% aukning frá fyrra ári. �?essi aukning byggir á bættri nýliðun ýsu árin 2016 og 2017 miðað við fimm ár þar á undan. Aflaregla ufsa gerir jafnframt ráð fyrir 10% aukningu í aflamarki fyrir næsta fiskveiðiár, úr 55.000 tonnum í 60.237 tonn. Aukninguna má m.a. rekja til hins stóra 2012 árgangs.
Árgangar gullkarfa hafa verið með lakasta móti frá 2006 og af þeim sökum hefur hrygningarstofn minnkað lítillega. Samkvæmt aflareglu verður heildaraflamark gullkarfa 2017/2018 því 50.800 tonn sem er 4% lækkun frá fyrra fiskveiðiári. Samkvæmt samkomulagi milli Íslands og Grænlands mun 90% eða 45.720 tonn koma í hlut Íslendinga. Ráðgjöf fyrir grálúðu er óbreytt frá fyrra ári eða 24.000 tonn. Samkvæmt samkomulagi milli Íslands og Grænlands munu 13.536 tonn koma í hlut Íslendinga.
Stofn íslensku sumargotssíldarinnar hefur minnkað ört á undanförnum árum vegna slakrar nýliðunar og frumdýrasýkingar í stofninum. �?annig hefur stofninn minnkað um nær 60% á undanförnum áratug. Ekki er að vænta mikilla breytinga á stofnstærðinni á næstu árum þar sem árgangar sem eru að koma inn í veiðistofninn eru metnir litlir og sýkingarhlutfall mælist hátt. Samkvæmt nýrri aflareglu fyrir síld sem rýnd hefur verið af Alþjóðahafrannsóknaráðinu, verður aflamark næsta fiskveiðiárs um 39.000 tonn sem er 38% lækkun frá yfirstandandi fiskveiðiári.
Ráðgjöf fyrir flatfiskastofna er lítið breytt frá síðasta fiskveiðiári, að undanskildri þykkvalúru þar sem ráðlagt aflamark eykst um 20%, í 1304 tonn. Lítilsháttar lækkun aflamarks er lögð til fyrir blálöngu, hlýra og steinbít. �?annig lækkar ráðlagður heildarafli steinbíts úr 8811 tonnum í 8540 tonn. Samkvæmt nýjum aflareglum fyrir löngu og keilu lækkar aflamark löngu um 8% frá fyrra fiskveiðiári í 8598 tonn, en hækkar í 4370 tonn fyrir keilu sem er 16% aukning. Lögð er til aukning aflamarks um 20% í skötusel, í 853 tonn, og hlutfallslega svipuð aukning fyrir gulllax eða úr 7885 tonnum í 9310 tonn.
Nýliðun í humarstofninn hefur verið mjög lítil í ríflega áratug og aflamark farið lækkandi. Hafrannsóknastofnun leggur til 12% lækkun aflamarks á humri fyrir fiskveiðárið 2017/2018, í 1150 tonn. Lögð er til 19% aukning á hámarksafla sæbjúgna og munar þar mestu um aukningu á veiðisvæði við Austurland, úr 623 tonnum í 985 tonn.
Af vef Hafró.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.