Besta rekstrarafkoma í 15 ár
hasteinssvaedi_yfir_opf
Vestmannaeyjabær. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025 var tekinn til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í dag.  Ársreikningurinn sýnir glögglega sterka stöðu bæjarsjóðs, jákvæða rekstrarafkomu, góða eignastöðu og litlar skuldir.   Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.

Heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar voru 10.730 m.kr. og rekstrargjöld 9.553 m.kr.

Rekstrarafkoma samstæðunnar (A og B hluta) var jákvæð um rúmar 781 m.kr. sem er besta rekstrarafkoma í 15 ár. Fyrir afskriftir og fjármagnsliði var rekstrarafkoma A-hluta bæjarsjóðs jákvæð um 535 m.kr. Að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða var afkoma A-hluta jákvæð um 296 m.kr.

Heildareignir samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu tæpum 20.479 m.kr. í árslok 2025. Þar af stóð handbært fé og sjóðir í 2.368 m.kr. Allar fjárfestingar bæjarins á árinu eru fjármagnaðar með handbæru fé (þ.e. eigið fé, ekki lántaka) og námu fjárfestingar samstæðu Vestmannaeyjabæjar um1.614 m.kr.

Veltufé frá rekstri í samstæðu A- og B hluta var 1.972 m.kr. eða 18,4% í hlutfalli við rekstrartekjur. Í A-hluta nam hlutfallið 17,6% eða 1.246 m.kr.

A- hluti sveitasjóðs hefur verið skuldlaus við lánastofnanir í tvö ár og einu skuldir B-hluta eru vegna félagslegra íbúða. Skuldaviðmið er lágt og töluvert lægra en flestra annarra sveitarfélaga en það nemur 16% af samstæðu en 19 % í A-hluta í árslok 2025.

Heildarrekstrartekjur 10.729.575.000
Heildarrekstrargjöld 9.553.075.000
Rekstrarafkoma ársins (jákvæð) 781.311.000
Niðurstaða efnahagsreiknings 20.478.815.000
Eigið fé 13.340.092.000
Handbært fé og skammtímafjárfestingar 2.368.733.000
Veltufé frá rekstri 1.972.064.000
Skuldaviðmið 16%
Skuldahlutfall 67%

Ársreikningurinn staðfestir traustan fjárhag Vestmannaeyjabæjar og getu sveitarfélagsins til að standa undir bæði rekstri og áframhaldandi uppbyggingu. Góð afkoma, sjálfbær rekstur og sterk eignastaða skapa svigrúm til að fjárfesta í innviðum og þjónustu til framtíðar í þágu íbúa bæjarins, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu
Að alast upp í Vestmannaeyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.