Revían í Vestmannaeyjum og Mzungu frá Afríku
Bókakynning í Bókasafninu á laugardaginn kl. 13:00.
Ljósmyndir/aðsendar.

Laugardaginn 29. nóvember munu tveir rithöfundar kynna nýjar bækur sínar á Bókasafninu. Una Margrét Jónsdóttir segir sögu revíunnar í bók sinni Silfuröld revíunnar. Þar segir hún m.a. frá hinu líflega starfi Sigurgeirs Schevings á níunda áratug síðustu aldar.

Silfuröld revíunnar

Una Margrét hefur í tæpan áratug helgað sig rannsóknum á sögu íslensku revíunnar en árið 2019 kom út bók hennar Gullöld revíunnar.

Nú er komið að síðari hlutanum, Silfuröld revíunnar þar sem fjallað er um revíur frá tímabilinu 1957–2015, og einnig kabaretta, áramótaskaup og staka gamansöngva.

Í bókinni fjallar Una Margrét m.a. um sögu revíunnar í Vestmannaeyjum og mun hún lesa og spjalla um þann merka þátt í menningarsögu Eyjanna.

Mzungu

Þórunn Rakel Gylfadóttir hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmenna fyrir fyrstu bók sína Akam, ég og Annika.

Nú er hún mætt aftur en að þessu sinni með bók fyrir fullorðna, Mzungu,  sem merkir sá eða sú sem ráfar stefnulaust um, upphaflega notað í Austur-Afríku til að lýsa landkönnuðum á 18. öld.

Í dag er þetta hugtak aðallega notað um Vesturlandabúa. Hér er á ferðinni hörkuspennandi og áleitin frásögn um hvert góður vilji og löngun til að bæta heiminn getur leitt.

Spennandi dagskrá sem óhætt er að mæla með. Kaffi og konfekt í boði, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.