�?víst er hvort Eyjamenn fara til Ísraels í útileikinn meðan ástandið í landinu er eins og það er. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, leyfir ísraelskum liðum ekki að spila heimaleiki sína í Ísrael að svo stöddu af öryggisástæðum og líklegt er að sama sé upp á teningnum hjá Evrópska handknattleikssambandinu. �?etta kemur fram á mbl.is en ÍBV dróst gegn ísraelska liðinu Hapoel Rishon LeZion í EHF-bikarnum. �??�?etta var eitthvað sem maður vildi alls ekki fá. �?etta var sko enginn óskadráttur,�?? sagði Gunnar Magnússon, þjálfari karlaliðs ÍBV á mbl.is.
�??Við munum klárlega skoða það hvort við getum keypt heimaleikinn þeirra til Vestmannaeyja. �?etta yrði náttúrlega rándýrt ferðalag. �?annig að við munum eflaust leita einhverra leiða til að spila báða leikina heima eða úti, ef ástandið er í lagi þarna í Ísrael þegar kemur að leikjunum. En eins og staðan er akkúrat núna, trúi ég því ekki að það verði einhverjir leikir í Ísrael. En það er ennþá einn og hálfur mánuður í þetta, þannig að maður veit ekkert hvað gerist í millitíðinni,�?? sagði Gunnar.