Reynt að kveikja í sólpalli í tvígang
Lögreglan hafíð í nógu að snúast í vikunni sem leið en þó má segja að páskahátíðinni hafi farið fram með ágætum. Eitthvað var um pústra um helgina en engar kærur liggja þó fyrir.
Að morgni 20. apríl sl. var lögreglu tilkynnt um að nokkur ungmenni væru í leyfisleysi í heitu pottunum við sundlaugina. Var þeim gert að yfirgefa svæðið en ekki liggur fyrir hvort lögð verði fram kæra vegna atviksins.
Að kvöldi 20. apríl sl. var lögreglu tilkynnt um að reynt hafi verið að kveikja í sólpalli við Hásteinsveg 45. Er þetta í annað skiptið á tveimur vikum sem reynt er að kveikja í þessum sólpalli. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að ferð en ljóst er að þarna er um hættulegan leik að ræða og hvetur lögreglan alla þá sem einhverjar upplýsingar hafa atvikið að hafa samband. �?á hvetur lögreglan þá eða þann sem þarna var á ferð að láta af þessu athæfi þar sem illa getur farið þegar verið er að leika sér með eld, eins og dæmin sanna.
Ein eignaspjöll voru tilkynnt lögreglu í vikunni en um var að ræða skemmdir á bifreið sem stóð á Fífilgötu, en bifreiðin hafði verið rispuð, líklega með lykli. Ekki er vitað hver þarna var á ferð og óskar lögreglan eftir upplýsingum um þann sem þarna var að verki.
Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni vegna gruns um ölvun við akstur og annar vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Fjórir ökumenn voru sektaðir vegna brota á umferðarlögum í vikunni, tveir fyrir ólöglega lagningu ökutækja, einn fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu og einn fyrir að vera með of marga farþega í bifreið sinni í akstri.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í liðinn viku og var í báðum tilvikum um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki.

Nýjustu fréttir

Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.