Ríkið sýknað af stefnu Fanneyjar Bjarkar í Héraðsdómi
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfu Fanneyjar Bjarkar Ásbjörnsdóttur í Vestmannaeyjum um nauðsynlega lyfjameðferð við lifrarbólgu C sem hún veiktist af sjúkdómnum við blóðgjöf eftir barnsburð á Sjúkrahúsinu í Eyjum árið 1983.

�?etta kemur fram á visir.is . �?ar segir að hér á landi séu notuð lyfin Interferon og Ribavirin við lifrarbólgu C en þau lyf eru talin úrelt í nágrannalöndum okkar. Meðferðin er sem fyrr segir 48 vikur, er afar erfið og hefur í för með sér miklar aukaverkanir líkt og var í tilfelli Fanneyjar.

Lyfjameðferðin sem Fanney vill fara í tekur átta vikur og það eru um 95 prósenta líkur á því að læknast af sjúkdómnum en af hinum lyfjunum eru líkurnar 70 prósent.

Fanney hefur verið í sambandi við lækni í Svíþjóð og komist að því að lyfin kosti 7-10 milljónir. Auk þess er meðferðin laus við aukaverkanir. Íslenska ríkið neitaði henni hins vegar um að taka þátt í þessum kostnaði og bar við fjárskort.

Fanney hefur áfrýjað þessum dómi Héraðsdóms til Hæstaréttar Íslands. Hægt er að lesa dóminn hér.

Nýjustu fréttir

Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.