Rokið við Stórhöfða verður hluti af markaðssetningu

Eignarhaldsfélagið Stórhöfði- Vestmannaeyjar stendur fyrir endurbyggingu á íbúðarhúsinu við Stórhöfða sem var byggt árið 1906. Þá hefur lendingarpallur fyrir þyrlur verið settur upp á svæðinu. Áætlað er að framkvæmdum ljúki eftir nokkra mánuði en eigendur ætla meðal annars að markaðssetja rokið á staðnum, visir.is greindi frá.

Nokkrir athafnamenn sem standa að eignarhaldsfélaginu Stórhöfða í Vestmanneyjum fengu leyfi til að endurgera íbúðarhúsið og vitann er sú framkvæmd langt komin. Þröstur Johnsen er einn þeirra.  „Við erum að endurgera og lagfæra húsið og vitann sjálfan þetta er húsnæði sem er um 200 fermetrar þannig að þetta er ekki stórt við áætlum að klárist framkvæmdir á húsinu á næstu 2-3 mánuðum.“ segir Þröstur.

Þröstur segir að enn eigi eftir að ákveða hvaða rekstrarform verði á húsnæðinu. „Þetta getur orðið fjölnotahúsnæði, móttöku húsnæði eða þess vegna gisting. Þetta er frábær staðsetning og syðsta byggðin á Íslandi.“  Hann segir að vindurinn og rokið við Stórhöfða verði hluti af markaðssetningu á svæðinu. „Hérna hafa mælst mestu veðurofsanir og þetta er talinn vera einn vindasamasti staður í Evrópu“

Lendingarpallur fyrir þyrlur hefur verið settur upp við íbúðarhúsið en nú er verið að stækka hann. „Þyrlur hafa verið að lenda hérna og mönnum líkar aðstaðan mjög vel en þetta er kannski ekki formlegur þyrlupallur með ljósum og því öllu þetta er auðvitað bara slétt steypt stór plata sem fylgir þeim öryggisstaðli sem þarf að vera.“ sagði Þröstur Johnsen sem talaði frá Stórhöfða í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.