Máltækið �??lengi getur vont versnað�?? á vel við um ástandið í Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja um þessar mundir. Röntgentæki stofnunarinnar hefur verið úrskurðað ónýtt og hefur ekki verið nothæft alla þessa viku. �?etta kemur fram á
Vísi.is og segir jafnframt að ástandið sé svo slæmt að Eyjamenn hafi þurft að fá lánað röntgentæki frá dýralækni í Reykjavík.
Staðan er því orðin mjög erfið því ofan á léleg tæki Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, séu samgöngur á sjó í lamasessi og getur verið erfitt að fá flugmiða. �?annig segir í frétt Vísis að viðgerðarmaður sem átti að koma frá Reykjavík, hafi þurft að bíða í rúman sólarhring eftir fari. Hann hafi svo skoðað röntgentækið sem var ekki bilað, heldur ónýtt.
�??Hér er allt að hrynja og enginn peningur til að kaupa nýtt. Við þurfum að fá tæki lánað frá dýralækni til bráðabirgða. Við vonumst svo til að fá nýtt röntgentæki eftir mánaðarmót, þegar Orkuhúsið endurnýjar tæki hjá sér. �?að tæki dugar okkur vonandi í tvö til þrjú ár,�?? segir Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri HSV í samtali við Vísi. Hann segir að tækið sé að meðaltali notað tíu til tólf sinnum á dag.
�??Við fáum lánstækið í hús um fjögurleytið á morgun. �?á á eftir að setja allt upp. Viðgerðamaðurinn þarf að fara á fund með erlendum gestum um helgina og má ekki missa af honum. Við vonumst til þess að Víkingur sigli til Landeyjahafnar á morgun, annars þarf hann að fá einkaflugvél til að sækja sig svo hann komist á fundinn,�?? segir Gunnar.
Engir smápeningar
Gunnar segist vera búinn að ræða við heilbrigðisráðuneytið og láta vita af slæmum tækjakosti í Eyjum. �??Við erum búin að kalla látlaust eftir meira fjármagni. Hér eru tæki í slæmu ástandi. �?að er í raun allt að hrynja núna.�??
Hann segir stofnunina þurfa mikið fjármagn til að endurnýja tækjakostinn. �??�?etta eru stórar fjárháðir sem umræðir. Svona tæki eru dýr. Til dæmis er lampi í einu tæki bilaður hjá okkur. Lampinn kostar tíu milljónir og nýtt tæki fjörutíu milljónir. �?etta eru engir smápeningar sem þetta kostar,�?? segir Gunnar.