Vegagerðin er reiðubúin að ganga til samninga við Eimskip Ísland ehf. um rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs næstu tvö árin. Krafa Eimskips um stöðvun samningsferlis vegna höfnunar fyrra tilboðs félagsins kemur hins vegar í veg fyrir að hægt sé að ganga til samninga. Á meðan gengur klukkan, samningar um rekstur Herjólfs renna út 1. maí sem og ráðningartími áhafnarinnar.