Segir nær ógerlegt að halda dýpkun í Landeyjahöfn áfram
Björgun ehf, sem sinnt hefur dýpkun í Landeyjahöfn, skilaði ekki inn tilboði þegar Vegagerðin auglýsti útboð vegna dýpkunarinnar í júlí, en það var belgíst stórfyrirtæki sem átti lægsta tilboðið að þessu sinni. Jóhann Garðar Jóhannsson, útgerðarstjóri hjá Björgun, segist ekki hafa séð fram á að geta klárað verkið. Nær ógerlegt sé að vinna í allt að tveggja metra ölduhæð og efast um að önnur skip eigi eftir að ráða við verkið.
Aðstæður óásættanlegar
�??Við teljum að ölduhæðin sé of há og okkar skip einfaldlega ráða ekki við hana. Skipin eru núna í ágætis standi en í vor þegar við byrjuðum dýpkunina þá brotnuðu sogrörin á öllum skipunum vegna ölduhæðar. �?annig að verkefnið er mjög erfitt og í tveggja metra öldu þá teljum við að ekki sé hægt að dæla,�?? segir hann. �?á hafi aðstæður ekki verið skipverjum ásættanlegar.
Eitt erfiðasta svæði í heimi
�??�?að teljum við alls ekki, sér í lagi þegar ölduhæð er tveir til tveir og hálfur metri, nær ógerlegt. En, þetta er eins og tilgreint er í útboðsgögnunum, eitt erfiðasta svæði í heiminum að dæla á og teljum ekki að önnur skip geti dælt í þessari ölduhæð,�?? segir Jóhann og bætir við að ekki sé hægt að líta á Landeyjahöfn sem heilsárshöfn.
Vegagerðin auglýsti útboð í júlí og opnaði tilboðin 11. ágúst síðastliðinn. �?rjú tilboð bárust og það lægsta hljóðaði upp á tæpar 588 milljónir króna frá belgíska fyrirtækinu Jan de Nul. Áætlað er að dæla þurfi allt að 750 þúsund rúmmetrum af sandi á næstu þremur árum.
Landeyjahöfn hefur sætt töluverðri gagnrýni, því erfitt hefur reynst að halda henni opinni. Á ársgrundvelli hefur lokunin náð fjörutíu prósentum og tæpum níutíu prósentum yfir vetrarmánuðina.

Vísir.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.