Selfoss áfram eftir vítakeppni
ÍBV og Selfoss mættust í 8-liða úrslitum í Borgunarbikar kvenna í dag. Selfoss sigraði að lokum í vítaspyrnukeppni eftir að staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma. Selfoss kemst því í undanútslit annað árið í röð með að leggja ÍBV af velli í vítaspyrnukeppni.
Leikurinn var fjörugur til að byrja með og áttu bæði lið ágæt tækifæri en náðu ekki að skapa neina almennilega hættu. Rétt undir lok fyrri hálfleiks fékk þó leikmaður Selfoss boltann í höndina en dómari leiksins dæmdi ekkert en líklega sáu allir aðrir það á vellinum. Síðari hálfleikur var tíðindalítill fyrstu mínúturnar en á 65. mínútu komst Selfoss í algjört dauðafæri en Bryndís Lára, markmaður ÍBV varði boltann frábærlega í slána. Næstu mínúturnar var mikið að gera hjá Bryndísi Láru í markinu og stóð hún sig frábærlega, hvert dauðafærið á eftir öðru hjá Selfossi. �?rátt fyrir nokkur frábær færi náði hvorugt lið að nýta sér það í venjulegum leiktíma og því var framlengt.
Undir lok fyrri hluta framlengingunar var brotið á Shenku Gordon en hún komst ein í gegnum vörn Selfyssinga og náði að pota í boltann á undan markverði þeirra, Chante Sandiford sem feldi hana svo og vítaspyrna dæmd. Cloe Laccase skoraði örugglega úr spyrnunni og staðan orðin 1-0 fyrir ÍBV. Í síðari hálfleik framlengingunar skoraði Kristín Erna Sigurlásdóttir en var dæmd rangstæð, undir lok framlengingunar braut Guðrún Bára á Magdalenu í liði Selfoss og dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu sem Guðmunda Brynja nýtti en Bryndís Lára var þó í boltanum, dramatíkin mikil á lokamínútunum. Staðan var 1-1 þegar flautað var til leiksloka og vítakeppni staðreynd. Selfoss hafði betur þar 3-1, en ÍBV nýtti aðeins eina spyrnu en það var Cloe Laccase sem skoraði.
Vítakeppnin: ÍBV – Selfoss 1-3
0-0 – Guðmunda Brynja �?ladóttir, Selfossi (Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir varði)
0-0 – Sabrína Lind Adolfsdóttir, ÍBV (Chante Sandiford varði)
0-1 – Dagný Brynjarsdóttir, Selfossi (mark)
1-1 – Cloe Lacasse, ÍBV (mark)
1-2 – Donna Kay Henry, Selfossi (mark)
1-2 – Sigríður Lára Garðarsdóttir, ÍBV (yfir markið)
1-2 – Magdalena Anna Reimus, Selfossi (yfir markið)
1-2 – Díana Dögg Magnúsdóttir, ÍBV (yfir markið)
1-3 – María Rós Arngrímsdóttir, Selfossi (mark)

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.