Sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára stúlku
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að karlmaður á fertugsaldri skuli sæta sex mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára systurdóttur eiginkonu sinnar. Að auki var honum gert að greiða stúlkunni 600.000 krónur. Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára.
Brotin áttu sér stað á tæplega tveggja vikna tímabili árið 2012. Maðurinn spurði stúlkuna, í smáskilaboðum og í gegnum Facebook, hvort hún væri í fötum og að ef hún færi úr að ofan þá fengi hún að aka bifreið hans. Maðurinn var leiðbeinandi hennar í æfingaakstri. Nokkur skilaboðanna fylgja hér að neðan.
�??�?g nudda þig þá bara í sturtunni.�??
�??Og ég er mjög glaður, graður átti þetta að vera.�??
Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að ekkert benti til annars en að skilaboðin hefðu verið af kynferðislegum toga, ítrekuð og til þess fallin að vekja ótta hjá stúlkunni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ásetningur hans hefði verið einbeittur og hann hafi ekki látið af háttseminni þó hann hafi vitað að brotaþola liði illa út af henni.
Hæstiréttur hafnaði því að ómerkja bæri dóm héraðsdóms á þeim grundvelli að tengsl saksóknara og réttargæslumanns væru óeðlileg en á það var ekki fallist. Taldi dómurinn ekki að nein málsatvik bentu til þess að fyrir væru hendi aðstæður eða atviku sem illu því að óhlutdrægni saksóknarans yrði dregin í efa.
Einn dómari, �?lafur Börkur �?orvaldsson, skilaði sératkvæði í málinu en hann taldi sex mánaða skilorðsbundinn dóm vera of þungan. Vildi hann að maðurinn yrði dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.
%
Að auki var manninum gert að greiða áfrýjunarkostnað málsins og þóknun réttargæslumanns brotaþola fyrir Hæstarétti. �?óknun hans til réttargæslumann fyrir héraði var lækkuð. Alls þarf hann að greiða rúmlega 2,2 milljónir króna vegna málsins.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.