Síðustu túrar kvótaársins hjá Eyjunum
Eyjarnar 20250826 081915
Landað úr Vestmannaey VE. Á bakvið hana er Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Þrír ísfisktogarar úr Síldarvinnslusamstæðunni lönduðu að loknum síðasta túr kvótaársins um nýliðna helgi og allir voru þeir með fullfermi. Bergey VE landaði í Grindavík á laugardag og það gerði einnig Jóhanna Gísladóttir GK. Vestmannaey VE landaði síðan í Eyjum á sunnudag.

Bergey og Vestmannaey voru mest með ýsu og ufsa en drýgstur hluti afla Jóhönnu Gísladóttur var karfi. Vestmannaeyjaskipin fóru allvíða í þeim tilgangi að veiða annað en þorsk en Jóhanna Gísladóttir fékk karfann á Reykjaneshrygg.

Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs – Hugins í Vestmannaeyjum, segir – í samtali við vef Síldarvinnslunnar – að nýtt kvótaár leggist vel í menn og Andrés Óskarsson, hjá Vísi í Grindavík, tekur undir það. Andrés segir að þó þorskkvóti sé minni á nýbyrjuðu kvótaári en á því síðasta þá megi það ekki gleymast að það sé hellings aukning í ýsunni.

Togararnir héldu á ný til veiða strax að löndun lokinni og fjórði ísfisktogarinn, Gullver NS, hélt til veiða á laugardag að lokinni löndun á Seyðisfirði sl. fimmtudag.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.