Sigríður Lára Garðarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Noregsmeistara Lillestrøm í 4:1-sigri gegn Avaldsnes í efstu deild Noregs í fótbolta í dag. Hún gulltryggði sigurinn með fjórða markinu á 89. mínútu af stuttu færi eftir hornspyrnu.
Sigríður Lára kom inn á sem varamaður á 73. mínútu og skoraði korteri síðar. Lillestrøm er með mikla yfirburði í deildinni og með 17 stiga forskot á Klepp sem er í öðru sæti.
Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn fyrir Røa í 4:3-útisigri á Lyn. Røa er í fimmta sæti með 26 stig.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.