Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru
Sigríður og Silja Bára.

Sigríður Stefánsdóttir hefur tekið við formennsku í stjórn Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) af Silju Báru Ómarsdóttur. Sigríður hefur verið varaformaður undanfarin þrjú ár, átti sæti í stjórn Eyjafjarðardeildar félagsins frá 2021 og hefur verið sjálfboðaliði allt frá 2017.

Silja Bára sat í stjórn félagsins frá árinu 2018 og var formaður síðustu þrjú árin. Hún var nýverið kjörin rektor Háskóla Íslands og tekur við því embætti í júlí. Formannsskiptin áttu sér stað á fundi stjórnar Rauða krossins í gær, 18. júní.

Sigríður er með BA-próf í almennum þjóðfélagsfræðum frá Háskóla Íslands og framhaldsnám í Þýskalandi í stjórnmálafræði. Hún hefur einnig lokið kennsluréttindanámi. Sigríður kenndi félagsfræði og stjórnmálafræði við Menntaskólann á Akureyri auk þess að sinna stjórnunarstörfum hjá Akureyrarbæ á árunum 1998 til 2017. Þá var hún bæjarfulltrúi og bæjarráðsmaður á Akureyri á árunum 1984-1998 og forseti bæjarstjórnar í tvö ár. Hún átti sæti í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjölda nefnda og ráða á sveitarstjórnarstigi og hjá ríkinu. Sigríður er búsett á Akureyri.

Vill fjölga sjálfboðaliðum og tryggja starf um allt land

Rauði krossinn starfar um heim allan og eru fjölmennustu og útbreiddustu hjálparsamtökin. Á Íslandi fagnaði félagið 100 ára afmæli á síðasta ári og hefur því í heila öld sinnt fjölmörgum verkefnum.

„Ég tek við starfi formanns með mikilli auðmýkt, tilhlökkun og virðingu fyrir öllum þeim sem starfa fyrir Rauða krossinn, bæði sjálfboðaliðum og starfsfólki,“ segir Sigríður. „Í samvinnu við öfluga stjórn vil ég gjarnan leggja sérstaka áherslu á að fjölga sjálfboðaliðum og styðja við þau sem þeim mikilvægu og fjölbreyttu störfum sinna.“ Þá vill hún einnig reyna að tryggja að starf Rauða krossins sé öflugt um allt land. Á sama tíma segir hún mikilvægt að sinna hjálparstarfi og alþjóðastarfi á viðsjárverðum tímum. „Rauði krossinn þarf að halda áfram að vera ávallt til staðar, þar sem þörfin er mest.“

Lýkur stjórnarsetu með þakklæti

Silja Bára segir það hafa verið mikinn heiður að vera í stjórn Rauða krossins og gegna formennsku síðustu árin. „Á þeim tíma sem ég hef verið í stjórn hefur geisað heimsfaraldur, eldgosahrina gengið yfir og flóttafólki á landinu fjölgað gríðarlega,“ segir hún. „Rauði krossinn hefur sinnt mikilvægum verkefnum á öllum þessum sviðum, ásamt því að reka önnur mikilvæg verkefni sem reiða sig á sjálfboðna þjónustu fólks í sínum nærsamfélögum. Við fögnuðum hundrað ára afmæli í fyrra og við það tækifæri gafst gott tækifæri til að skoða hvernig starf félagsins hefur þróast en sami kjarninn haldist – að styðja við fólk í erfiðum aðstæðum.

Það er ástæða til að vera uggandi um framtíðina, stríð geisa víða um heim og hungursneyðir af mannavöldum og náttúrunnar kalla á aukið framlag til þróunarstarfs og friðaruppbyggingar, en áhersla ráðafólks er frekar á að svara kalli eftir aukinni hervæðingu. Verkefni Rauða krossins, hér heima og á alþjóðavettvangi, verður áfram að vera til staðar fyrir samfélagið sitt og það þurfum við að skilgreina á breiðan hátt. Ég lýk stjórnarsetu í Rauða krossinum með þakklæti en held áfram að vera félagi og Mannvinur,“ segir Silja Bára.

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.