�?að var mikið stuð á tónleikum Bjartmars í Alþýðuhúsinu íi gærkvöldi sem urðu um leið sigurstund eftir að lag Bjartmars, �?annig líður tíminn var valið �?skalag þjóðarinnar á R�?V.
Sjálfur sagði Bjartmar að valið hefði komið sér algjörlega á óvart. �??�?að er gaman að vera hérna þar sem þetta allt saman hófst,�?? sagði Bjartmar þegar blaðamaður Eyjafrétta ræddi við hann baksviðs í Alþýðuhúsinu fyrir tónleikana. �??�?g átti alls ekki von á þessu, var ekki einu sinni að fylgjast með og vissi ekkert fyrr en stelpurnar hérna í Alþýðuhúsinu sögðu mér frá þessu,�?? sagði Bjartmar sem fór á kostum á tónleikunum.
Alþýðuhúsið var þéttsetið og var Bjartmari fagnað eins og sigurvegara ber. Hann sagði margar skemmtilegar sögur og minntist félaganna sem stigu með honum fyrstu skrefin í tónlistinni þar sem Alþýðuhúsið var vettvangurinn.
Í blaði Eyjafrétta næsta miðvikudag verður birt viðtal við Bjartmar í sigurvímu kvöldsins.