Sjúkraflug næstum annan hvern dag
Starfsstöð Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands í Vestmannaeyjum.
Karl Gauti Hjaltason þingmaður

Karl Gauti Hjaltason alþingismaður ræddi um stöðu sjúkrahúsþjónustu í Vestmannaeyjum í ræðu sinni á alþingi í dag. Hann talaði meðal annars um skurðstofuna sem hér áður var starfandi og sjúkraflugvél sem var flutt á Akureyri úr varð að tvölfalt lengri viðbragstími er nú eftir sjúkraflugi. Einnig ræddi hann fæðingarþjónustuna og þá staðreynd að Vestmanneyingar fæðast nú að mestu á Landspítalanum.

„Herra forseti.öfuðborgarsvæðisins. Vestmannaeyjar eru háðar öruggu sjúkraflugi þar sem sólarhringsvakt á skurðstofu heilbrigðisstofnunar var aflögð árið 2013. Sama ár og nokkru fyrr árið 2013 — og það var réttlætt sérstaklega með því að í Vestmannaeyjum væri skurðstofa — var sjúkraflugvél sem áður hafði verið staðsett í Vestmannaeyjum flutt á Akureyri. Því fylgir auðvitað tvöfalt lengri viðbragðstími þegar kölluð er út sjúkraflugvél til Vestmannaeyja. Allt þetta hefur haft afar slæm áhrif á öryggi í heilbrigðismálum Vestmannaeyinga. Á árinu 2018 þurfti að kalla til sjúkraflugvél eða þyrlur til sjúkraflutninga í Vestmannaeyjum að meðaltali 2,7 skipti í viku eða næstum annan hvern dag.
Fæðingarþjónusta í Vestmannaeyjum er lágáhættudeild og því fæðast þar nú síðustu fimm árin einungis örfá börn ár hvert. Staðreyndin er því sú að langflestir Vestmannaeyingar fæðast á Landspítalanum í Reykjavík. Það felur í sér gríðarlegt umstang, vinnutap og kostnað fyrir barnshafandi konur og fjölskyldur þeirra að þurfa að flytja sig til Reykjavíkur nokkrar vikur fyrir fæðingu barns síns. Herra forseti. Hér er úrbóta þörf, annaðhvort þarf að endurreisa skurðstofuna í Vestmannaeyjum á heilbrigðisstofnuninni eða koma upp sérstakri sjúkraþyrlu fyrir Suðurland. Herra forseti. Þetta ástand í heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum er ekki boðlegt. Það er ekki boðlegt að jafn stórt samfélag og Vestmannaeyjar þurfi að búa við þetta ástand óbreytt,“ sagði Karl Gauti í ræðu sinni.

Nýjustu fréttir

Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.