Frekar rólegt var hjá lögreglu í liðinni viku en að vanda komu upp hin ýmsu mál sem þurfti að greiða úr enda bæjarbúar duglegir við að leita eftir aðstoð lögreglu vegna hinna ýmsu mála. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en þó var eitthvað, eins og endranær, um að kvartað væri undan hávaða frá heimahúsum.
Ein líkamsárás var kærð í liðinni viku en árásin átti sér stað á einu af öldurhúsum bæjarins að kvöldi 19. febrúar sl. �?arna hafði par á þrítugsaldri ráðist á mann á fertugsaldri með þeim afleiðingum að sá sem fyrir árásinni varð hlaut minniháttar áverka. Málið er í rannsókn.
Fjögur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið án þess þó að slys hafi orðið á fólki. Aðfaranótt 22. febrúar sl. var lögreglu tilkynnt um að bifreið hafi lent utan vega við gatnamót Ofanleitisvegar/Hraunvegar og Höfðavegar án þess þó að slys hafi orðið á fólki. �?arna hafið ökumaðurinn fipast við aksturinn með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti utan vega.
Tilkynningar hafa borist til lögreglu eftir helgina um að spreyjað hafi verið á veggi á Skansinum, við Vigtarhúsið og Kaffi Kró. Einnig hafi verið spreyjað á langferðabifreið sem stóð við Kaffi Kró. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hver eða hverjir þarna voru að verki og óskar lögreglan eftir upplýsingum um hver eða hverjir þarna voru á ferð.