Skvísudagur á Bókasafninu um helgina

Bókasafnið býður upp á skemmtilega dagskrá n.k. laugardag, 21. febrúar þar sem sérstakur skvísudagur verður haldinn í tilefni konudagsins.

Dagskráin fer fram í Sagnheimum kl. 13 þar sem rithöfundurinn Ása Marín kemur í heimsókn og fjallar um bækur sínar, segir frá hvað veitir henni innblástur ásamt því að lesa brot úr nýjustu bók sinni, Stjörnurnar yfir Eyjafirði. Gestir eru velkomnir að taka með sér handavinnu og njóta notalegrar stundar á safninu.

Einnig verður armbandagerð á bókasafninu þar sem þátttakendur geta búið til falleg armbönd úr fjölbreyttu úrvali af perlum. Í boði verða meðal annars nammiperlur, litrík kúluperlur og aðrar skrautperlur.

Opið verður til kl 15.

Nýjustu fréttir

Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.