Vikan var tiltölulega róleg hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald heldarinnar fór þokkalega fram en eitthvað var þó um útköll á öldurhús bæjarins. �?á var, eins og svo oft áður, eitthvað um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum.
Einn fékk að gista fangageymslu lögreglu eftir skammtanahald helgarinnar en sá hinn sami hafði verið til óþurftar inni á einum af veitingastöðum bæjarins og var óskað eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja manninn. �?egar lögreglan var að aðstoða manninn við að komast til síns heima snérist hann gegn lögreglu og sló lögreglumann í bringuna. Maðurinn var í framhaldi af því handtekinn og fékk gistingu í fangageymslu þar til víman rann af honum.
Ein eignaspjöll voru tilkynnt lögreglu í vikunni en um var að ræða rúðubrot í tveimur vörubifreiðum sem stóðu bak við móttöku Endurvinnslunnar v/Strandveg. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar þann 14. mars sl. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki og óskar lögreglan eftir upplýsingum um grunsamlegar mannaferðir við bifreiðarnar þegar atvikið átti sér stað.
Laust eftir hádegi þann 20. mars sl. var lögreglu tilkynnt um vinnuslys í FES. �?arna hafði maður sem var að sprauta málningu gengið út af palli með þeim afleiðingum að hann féll niður um 2-3 metra á steinsteypt gólf. Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja en ekki er talið að meðsl hans séu alvarleg.