Það var eflaust mörgum sem brá í gær þegar sólin lét sjá sig enda farið lítið fyrir henni að undanförnu. Í dag má þó búast við henni aftur. Smá skýjahula er yfir þessa stundina en ætti hana að leysa þegar líður á daginn.
Ástæða þess er hæðarhryggur á Grænlandshafi sem þokast nær landinu. Hann verður svo kominn vel yfir land á morgun og ætti honum að fylgja talsvert sólskin og allt að 19 stiga hita sunnanlands.
Það er þó ekki líklegt að blíðan staldri lengi við því nýjar lægðir og úrkomusvæði nálgast.
Svona er spáin næstu daga:
Á þriðjudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt og léttskýjað á vestanverðu landinu, en skýjað eystra og þokuloft eða súld við ströndina. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast sunnan til.
Á miðvikudag:
Hæg suðlæg átt og bjart með köflum, en dálítil væta við suður- og vesturströndina um kvöldið. Hiti 12 til 17 stig að deginum.
Á fimmtudag:
Hægir vindar, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en áfram fremur hlýtt.
Á föstudag:
Sunnanátt og rigning eða súld, en lengst af þurrt norðaustan til. Milt veður.
Á laugardag:
Vestlæg eða breytileg átt og víða skúrir eða dálítil rigning og kólnar lítið eitt.
Á sunnudag:
Útlit fyrir norðlæga átt með lítils háttar vætu úti við norðurströndina, en annars bjart með köflum og fremur svalt.
Það er því um að gera að njóta á meðan er.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.