Sorphirðugjöldin og �??umhverfistöffarmennska"
Hér á fréttasíðu eyjafretta er önnur frétt um há sorphirðugjöld í Eyjum. Eyjafréttum hefur verið bent á að verðlagning þessa gjalds eigi sér skýringar, sem ekki sé á valdi Vestmannaeyjabæjar að ráða við. �?egar sorpbrennslunni var lokað á sínum tíma, þurfti að senda allt sorp frá Eyjum með Herjólfi. �?að sé óhemju dýrt. �?að endurspeglist í verðlagningu sorphirðugjaldsins. �?egar ákvörðun þáverandi umhverfisráðherra um að loka sorpbrennslunni lá fyrir, skrifaði Elliði Vignisson, bæjastjóri grein í Eyjafréttir, þar sem hann útskýrir málið og gagnrýnir þessa ákvörðun.
�??Sú “umhverfistöffaramennska” (sjá skilgreiningu hér neðst) sem einkenndi seinasta kjörtímabil er að verða Eyjamönnum eins og svo mörgum öðrum afar kostnaðarfrekt. Á einasta fundi bæjarstjórnar lýsti meirihluti sjálfstæðismanna yfir þungum áhyggjum af þeirri miklu kostnaðaraukningu sem orðið hefur í meðferð sorpmála í sveitarfélaginu. Í máli okkar sjálfstæðismanna kom fram að lokun sorpbrennslustöðvar í sveitarfélaginu sem fyrst og fremst má rekja til ákvörðunar fyrrverandi umhverfisráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, hafi nú leitt til…
…77% hækkunar sorpeyðingargjalda.
Heimilin í Eyjum borga fyrir umhverfistöffaramennskuna í ráðherrum VG
�?ll berum við ábyrgð á umhverfi okkar og sú ábyrgð er rík. Við eigum að umgangast umhverfið af virðingu og tryggja að við skilum því í betra ástandi til komandi kynslóða en við tókum við því. Hluti af þessari ábyrgð er að fara ekki í einhvern vitleysisgang, heldur hafa heildarhagsmuni í huga. Tryggja að samfélög og umhverfi þeirra séu í sátt, enda bæði hluti af sama vistkerfinu. �?að er hættulegt samfélagnu ef umhverfissjónarmið eru ekki virt. Á því leikur ekki vafi. Á sama hátt er líka hættulegt umhverfinu þegar umræðan verður öfgakennd og rasað er um ráð fram ýmist af vanþekkingu eða í pólitískumleik. �?egar umræða um sorporkustöðina hér í Eyjum náði sem hæst á vordögum 2011 varaði ég við því að umhverfisyfirvöld færu þá leið slá sig til riddara á kostnað heimila í Eyjum. �?g benti til að mynda á að ef of bratt yrði farið myndi kostnaður fara úr böndum og með einum eða öðrum hætti myndu heimilin hér bera þann bagga. (sjá td. hér)
Ruglið reið ekki við einteyming
Umræða um díoxínmengun náði nýjum hæðum á vordögum og mátti nema móðursýkina og vitleysisganginn á Richterskala þegar verst lét. Svo langt gekk að nauðsynlegt reyndist að halda borgarafund hér í Eyjum þar sem landlæknir sagði til að mynda að erfitt væri að sýna fram á eiturefnaáhrif díoxín á menn og fátt myndi benda til þess að slíku væri fyrir að fara í Vestmannaeyjum (sjá td. hér). Allt var reynt til að verja hagsmuni bæjarbúa. �?tal fundir, bréfaskrif, lögfræðingameldingar og fl. Við bentum á að búið væri að ná tökum á díoxínmengun, hægt að draga um 60% úr brennslu og þar fram eftir götunum. Allt kom þó fyrir ekki. (sjá td. hér)
Ekkert var hlustað
Bent var á að heildar umhverfisáhrifin væru alvarlegri af því að flytja sorpið til förgunar annað og brenna díselolíu til orkuöflunar hér í Eyjum í staðinn. �?að skipti ekki máli fyrir þá sem fóru með valdið. Bent var á hversu mikill árangur hefði náðst í að draga úr útblæsti og að stöðin væri orðin langtum betri en hún var þegar hún var ný. �?að skipti umhverfistöffarana ekki máli. Bent var á að ef haldið yrði áfram með ofstækið gegn brennslunni í Eyjum þyrfti að flytja allt sorp í burtu með farþegaferju sem illa myndi þola aukið álag. �?au rök máttu sín lítils. Bent var á þann mikla kostnað sem af þessum kröfum myndu hljótast. �?að skipti ekki máli fyrir þá sem fóru með valdið. Fleira var dregið fram til að kalla eftir skilningi þáverandi umhverfisyfirvalda. �?au skelltu hinsvegar skollaeyrum við öllum ábendingum.
Eitt af stóru verkefnum næsta kjörtímabils
Nú er skaðin skeður. Heimilin í Eyjum geta því þakkað fyrrum umhverfisráðherra kostnaðaraukningu af sorpeyðingargjöldum upp á 77%. �?llu sorpi í Eyjum eru nú komið í ferþegaferjuna og því síðan trukkað um hundruði kílómetra til förgunar annarstaðar. Í staðin brennum við aukinni díselolíu. Eitt af stóru verkefnum næsta kjörtímabils verður að finna hagkvæmari leiðir í sorpmálum íbúa. Leiða má líkum að því að sérstaklega verði horft til þess að hefja á ný sorpbrennslu til orkuöflunar.
(Umhverfistöffaramennska; Að ráðast gegn almennri skynsemi í nafni umhverfisöfga og eftir láta öðrum að greiða kostnaðinn eða færa fórnirnar. Dæmi: ofstækið gegn sorpbrennslum, herferð gegn umferð á hálendinu, stríð gegn nýtingu vatnsafls og lengi má áfram telja. Sjá stefnu VG til nánari glöggvunar á umhverfistöffaramennsku.)

Nýjustu fréttir

Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.