Staða sjúkraflugs óásættanleg
23. október, 2019

Langvarandi aðgerðarleysi í málaflokknum ólíðandi
Öflugt sjúkraflug er einn mikilvægasti liður í öryggi landsmanna sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu er sannarlega víðsvegar um landið en þegar kemur að sérhæfðri bráðaþjónustu er hún fyrst og fremst veitt í Reykjavík og þá skiptir hver mínúta við sjúkraflutninga íbúa á landsbyggðinni lífspursmáli. Íbúar Vestmannaeyja og Vestfjarða reiða sig mikið á sjúkraflug til að sækja bráðaþjónustu, en skurðdeildinni var lokað í Vestmannaeyjum árið 2013 og er hún ekki til staðar á sunnanverðum Vestfjörðum.

Óásættanlegar aðstæður í sjúkraflugi
Alvarleg lífsógnandi veikindi á borð við kransæðastíflu og blóðtappa í heila, vandamál við fæðingu og lífshættuleg slys eru þess eðlis að stuttur viðbragðstími fyrir aðkomu sérhæfðrar bráðaþjónustu eru oftar en ekki forsenda lífsbjargandi meðferðar. Árið 2013 kom út skýrsla ríkisendurskoðunar um viðbragðstíma sjúkraflugs og þróun þess. Þar kom skýrt fram að viðbragðstími vegna sjúkraflutninga til Vestfjarða og Vestmannaeyja hefur aukist í kjölfar þess að staðsetning miðstöðvar sjúkraflugs var flutt til Akureyrar. Samkvæmt skýrslunni jókst viðbragðstími að meðaltali um 2 mínútur fyrir Vestfirði en 24 mínútur fyrir Vestmannaeyjar og stendur þar svart á hvítu „að ljóst er að þessi munur getur í einhverjum tilvikum skipt sköpum.“ Greinarhöfundar þekkja báðar dæmi úr þeirra samfélögum þar sem slíkar dýrmætar mínútur hafa haft óafturkræfar afleiðingar fyrir sjúklinga. Er í raun ómögulegt að segja í hversu mörgum tilfellum aukinn viðbragðstími sjúkraflugs hefur haft óbætanleg áhrif á íbúa þessara landssvæða. Við undirbúning við flutning sjúkraflugsins til Akureyrar ályktuðu ýmsir hagsmunaaðilar s.s. félag íslenskra landsbyggðalækna, heilbrigðisstofnanir og sveitarfélög á landsbyggðinni þar sem tekið var undir hugmyndir um að sérhæfð sjúkraflugvél yrði staðsett á Akureyri. Margir höfðu þó áhyggjur af sérstöðu Vestmannaeyja og Ísafjarðar og vildu að flugvélar yrðu einnig staðsettar þar.

Ein sjúkraflugvél sinnir öllu landinu
Eins og staðan er í dag er aðeins ein sjúkraflugvél sem sinnir sjúkraflugi á öllu landinu og er hún staðsett á Akureyri. Slíkt fyrirkomulag býður þeirri hættu heim að sjúkravélin sé upptekin í útkalli í einum landshluta þegar bráðaútkall kemur í öðrum landshluta. Við F1 útkall, sem þýðir bráð lífsógn, setja Sjúkratryggingar Íslands þær kröfur að viðbragðstími skuli ekki vera lengri en 35 mínútur en ef sjúkraflugvél er að sinna öðru verkefni lengist viðbragðstíminn í allt að 105 mínútur. Til viðbótar við sjúkraflugvélina sjá björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar um brýna sjúkraflutninga þegar þeim verður ekki viðkomið með bílum eða flugvél. Vandamálið er þó að viðbragðstími þeirra er yfirleitt lengri en sjúkraflugvéla þar sem þær fara almennt hægar yfir.

Aðgerðarleysi í 6 ár á meðan fjöldi og kostnaður við sjúkraflug eykst
Í eftirfylgniskýrslu um stöðu sjúkraflugs sem birtist 2016 gagnrýndi ríkisendurskoðun þann seinagang sem ríkt hefur í þessum mikilvæga málaflokki. Jafnframt gagnrýndi hún samskiptaleysi milli þeirra ráðuneyta sem í hlut eiga, en á þeim 6 árum frá því að skýrslan kom fyrst út hafa aðstæður í sjúkraflugi lítið sem ekkert breyst til þessara dreifðu byggða. Á sama tíma hefur ríkisvaldið dregið úr sérhæfðri heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, á meðan  stórfelld aukning erlendra ferðamanna á landinu veldur því að fjöldi og kostnaður vegna sjúkraflugs fer vaxandi frá ári til árs. Til að mynda jókst umfang sjúkraflutninga á árunum 2014-2017 um allt að 37%, mest á Suðurlandi, Suðurnesjum og Akureyri.

Sérútbúin sjúkraþyrla á suðurland og björgunarþyrla Landhelgisgæslu á Vestfirði
Sérútbúin sjúkraþyrla með staðarvakt sem væri staðsett á suðurlandi hefur margvíslega kosti í för með sér. Bráðaviðbragð fyrir íbúa og ferðafólk á suðurlandi væri mun öruggara og hraðara. Slíkir sjúkraflutningar myndu draga úr álagi á sjúkravélinni á Akureyri frá landshlutanum sem bætir þannig viðbragð vélarinnar við aðra landshluta. Auk þess gæti fyrirkomulagið skapað svigrúm til þess að staðsetja björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar víðar um landið, t.a.m. að ein þriggja þyrla Landhelgisgæslunnar yrði staðsett á Vestfjörðum og jafnvel ein á Norðausturlandi. Slíkt myndi auka öryggi og viðbragð við alvarlegum slysum á þessum landshlutum, sem og bæta öryggi sjófarenda til muna sem fara um hafsvæði þessara landshluta.

Aðgerða er þörf
Fyrir hönd íbúa í Vestmannaeyjum og á Vestfjörðum skora undirritaðar á þingmenn og viðeigandi ráðuneyti að grípa tafarlaust til aðgerða vegna sjúkraflugs þessara byggðarlaga. Með blönduðu kerfi sjúkra- og björgunarþyrla, þar sem sérútbúin sjúkraþyrla yrði staðsett á suðurlandi og björgunarþyrla Landhelgisgæslu á Vestfjörðum, yrðu stigin mikilvæg skref í þá átt að jafna aðgengi landsmanna að sérhæfðri bráðaþjónustu en samkvæmt lögum eiga allir landsmenn að eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita. Hér er um mikið öryggismál að ræða og á það að vera sjálfsögð krafa að slík forgangsmál séu í lagi. 

Hafdís Gunnarsdóttir
Formaður bæjarráðs og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ

Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Greinin birtist í Morgunblaðinu

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst