Stefna á að klára 9.000 tonn fyrir jól
Útgerðarstjórinn Eyþór framan við Heimaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Eyþór Harðarson, útgerðastjóri Ísfélagsins, segir síldveiðar félagsins hafa farið vel af stað á þessu hausti. „Við byrjuðum í síðustu viku á síldveiðum úr íslenska stofninum. Okkar heimildir eru um 13.700 tonn, en við vorum búnir að taka ca. 2.700 tonn fyrir austan í bland við veiðar úr norsk-íslenska stofninum,“ segir hann.

Aðspurður um hvað Ísfélagið eigi mikið eftir af síldarkvóta útskýrir Eyþór að þegar veiðarnar hófust vestur af landinu hafi um 11.000 tonn verið óveidd. „Heimaey og Sigurður stunda veiðarnar og hafa landað sitt hvorum túrnum upp á 1.200 tonn hvor. Þannig að við eigum 9.000 tonn eftir á þessari vertíð sem við vonumst til að klára fyrir jól ef vel gengur.“

Veiðarnar fara nú fram vestur úr Faxaflóa og segir Eyþór tímann á miðin hæfilegan. „Síldin er að veiðast vestur úr Faxaflóa og ekki nema 10–12 tímar á veiðsvæðið eins og þetta hefur verið,“ segir hann.

Spurður um meðafla í veiðunum segir Eyþór að það sé lítið um annað en síld í veiðafærunum. „Það hefur verið eitthvað um spærling í meðafla en að öðru leyti er þetta bara hrein síld,“ segir hann að lokum.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.