Félagið óskar öllum þeim sem hafa tryggt sér miða á mat og skemmtun á Stóra Lundaballinu, innilega til hamingju. Uppselt er á þennan hluta hátíðarinnar.
Við viljum minna á það í leiðinni að forsala á dansleikinn á Stóra Lundaballinu fer fram í Höllinni í dag milli kl. 17.00 og 19.00.
Takmarkaður miðafjöldi. Betri er einn fugl í háfi, en þrír í holu.
Í ljósi mikillar aðsóknar er spurning hvort það myndi nokkuð drepa úteyjarmenn að vera eins og menn fram að miðnætti? Gerið okkur þann greiða!
Stjórn Veiðifélagsins Heimaeyjar