Stórtónleikar í tilefni 100 ára fæðingarafmælis Ása í Bæ
Í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Ástgeirs �?lafssonar, Ása í Bæ, 27. febrúar næstkomandi, er blásið til sannkallaðrar gleði- og tónlistarveislu í Eldborgarsal Hörpu, 8. febrúar 2014. Ása í Bæ þarf ekki að kynna fyrir nokkrum Eyjamanni, enda fer þar eitt þekktasta skáld Eyjanna fyrr og síðar. En hann var ekki bara frábær textasmiður, heldur einnig nokkuð lunkinn lagasmiður og sum laga Ása eru landsþekkt. �?essi lög og nokkur önnur, sem hann gerði texta við, verða flutt í Hörpu og rifjaðar upp skemmtilegar sögur af þessum mikla listamanni og lífskúnstner.
Árið 2014 verða einnig 140 ár liðin frá fyrstu �?jóðhátíð Vestmannaeyja. Við rifjum upp söguna og flytjum mörg af þekktustu lögunum sem við kennum við þessa stærstu og flottustu fjölskylduhátíð landsins og þá langstærstu í heiminum miðað við höfðatölu.
Fjöldi listamanna kemur að þessum gleðitónleikum. Pálmi Gunnarsson, Guðrún Gunnars, Sigga Beinteins, Eyþór Ingi, Ingó, Hreimur, Kristján Gísla, Sólveig Unnur Ragnarsdóttir, Silja Elsabet Brynjarsdóttir, Alexander Jarl �?orsteinsson, Sunna Guðlaugsdóttir, Alma Rut og Erna Hrönn, ásamt Blítt og létt hópnum úr Eyjum og Lúðrasveit Vestmannaeyja. Hljómsveitin Heimaslóð mun sjá um undirleikinn og hana skipa Birgir Nielsen �?órsson, Eiður Arnarsson, Jón Elvar Hafsteinsson, Matti Kallio, Sigurður Flosason, Kjartan Hákonarson og hljómsveitarstjórinn �?órir �?lfarsson.
�?að verður því mikið líf og mikil stemning á sviði Eldborgar þegar lög Ása í Bæ og úrval �?jóðhátíðarlaga Vestmannaeyja verða flutt þar þann 8.febrúar næstkomandi. Miðasala hefst á næstu dögum og um að gera fyrir þig að fylgjast vel með og tryggja þér besta sætið í salnum.
Fréttatilkynning

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.