Kæru Eyjamenn!
Á laugardag er stórviðburður í íþróttalífinu í Eyjum þegar Valsmenn mæta til Eyja og mæta B-liði ÍBV í 16-liða úrslitum Coca-cola bikarsins. Venjulega hefur fyrsti leikur B-liðsins verið í 16-liða úrslitum en vegna misskilnings við dráttinn í 32-liða úrslitum gleymdist að láta B-liðið sitja hjá í þeirri umferð. �?urfti liðið því að etja kappi við Hauka 2 og vannst sannfærandi sigur 22-27 í mögnuðum leik í Strandgötunni í Hafnarfirði.
Af B-liðinu er það að frétta helst að æfingar hafa gengið vel og ástundun verið frábær á þær fjölmörgu æfingar sem haldnar hafa verið. �?á fóru þjálfari liðsins, aðstoðarþjálfari og keiluskotsskytta til Portúgal í síðustu viku til að kynna sér ný leikafbrigði og munu þau án vafa sjást á leik liðsins á laugardag.
Einhver forföll verða af þeim leikmönnum sem léku gegn Haukum. Ber þar helst að nefna að Björgvin �?ór Rúnarsson mun ekki leika með liðinu en hann lét eftirfarandi orð falla eftir síðasta leik: �??�?g er bara klökkur eftir svona frammistöðu!�??. Björgvin sér ekki fram á að geta bætt sinn leik í þessari umferð og gaf því eftir sitt sæti í liðinu. �?á eru einhver frekari forföll en þrátt fyrir það bíður þjálfarans gríðarlega erfitt verkefni að velja í hóp, mannvalið er einfaldlega svo mikið.
Leikurinn við Valsmenn er í gamla sal Íþróttamiðstöðvarinnar kl. 14 á laugardag. Hægt er að nálgast miða á Hárstofu Viktors við Vestmannabraut og hjá leikmönnum B-liðsins. Miðaverð 1.500 kr.