Meistaraflokkur kom saman í Reykjavík um helgina og lék tvo leiki í Íslandsmótinu innanhús. Strákarnir eru þar í riðli með Sindra, Afríku og Leikni R. leikin er tvöföld umferð og kemst efsta liðið í úrslitakeppnina. Strákarnir spiluðu tvo leiki við Sindra og unnu þá báða, þann fyrri 13-6 og þann síðari 20-2 og tylltu sér þar með á topp riðilsins.