Erfiðleikar við dýpkun Landeyjahafnar og þáttur dýpkunarskipsins Skandia hafa ekki farið framhjá neinum og aðgerðir til opnunar hafnarinnar sætt gagnrýni. Ég hef fylgst vel með málinu og farið reglulega yfir það með Siglingastofnun. Að hluta til er gagnrýni Eyjamanna réttmæt því dýpkun í og við höfnina hefur ekki gengið sem skyldi og áætlanir því ekki staðist. Hins vegar er mikil einföldun að kenna skipinu alfarið um.