Dagana 8.-21. nóvember er þess minnst að í ár eru 50 ár liðin frá því Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum tók til starfa. Sýningin opnar laugardaginn 8. nóvember kl. 13 með ávarpi Friðriks Ásmundssonar, fyrrverandi skólastjóra, þar sem hann mun jafnframt kynna nýútkomið rit sitt um Stýrimannaskólann og þá mun Sigurgeir Jónsson kennari líta yfir farinn veg á sinn einstaka hátt.
Allir hjartanlega velkomnir.