Sýning �?órunnar Báru í Eldheimum verður opnuð í dag kl. 17.00. Verkin á sýningu hennar í Eldheimum eru gerð á árinu 2017 og hafa tilvísun í rannsóknir á þróun lífríkis og jarðfræði í Surtsey en �?órunn Bára hefur unnið með þann efnivið síðastliðinn áratug.
�?órunn Bára vinnur með náttúruskynjun og trúir því að skynreynsla sé vannýtt leið að gagnrýnni hugsun og ábyrgð einstaklings á umhverfi og eigin lífi, sem gæti dregið úr firringu og orðið hvati til góðra verka. Hún vinnur stór litrík verk með óræðum formum í þeirri trú að það stöðvi tímann eitt augnablik og dragi úr streitu í innra samtali manns við hversdagslega náttúru. �?órunn Bára leitar að undirliggjandi formgerð í óreiðu lifandi náttúru sem hún túlkar með óhlutbundnu og hlutbundnu myndmáli. Hún ímyndar sér að með því varpi hún ljósi á undrið í lífinu, fegurðina og margbreytileikann í sköpun og eyðileggingu, lífsbaráttu og leit alls sem lifir í náttúrunni eftir öryggi.
Verkin vinnur �?órunn Bára í seríum og eru þau hluti af heildarverki, nokkurskonar sjónrænni skráningu á lífríki Surtseyjar.
�?órunn Bára lauk prófi í málun og teikningu frá Listaháskólanum í Edinborg og mastersprófi í listum frá Wesleyan háskóla í Bandaríkunum. �?órunn Bára er nú sjálfstætt starfandi myndlistarmaður í Reykjavík og má kynnast verkum hennar á vefsíðunni; www. thorunnbara.is. Verk hennar eru sýnd og til sölu á Gallerí Fold en einnig má nálgast verkin á vinnustofu hennar.