Hlutirnir ganga hratt fyrir sig því frétt um mælingu í Landeyjahöfn er orðin úrlet. �??�?að er komið að því, LANDEYJAH�?FN OPNAR,�?? segir í fréttatilkynningu frá Eimskip rétt í þessu. �?ar segir að aldrei hafi tekist að opna höfnina eins snemma og nú eftir vetrarlokun. Mikill gleðidagur.
�??Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag 7. mars. Brottför frá Vestmannaeyjum 15:30 og brottför frá Landeyjahöfn 19:45. Í ljósi þess að um er að ræða fyrstu ferð Herjólfs til Landeyjahafnar þetta árið þá þurfum við að bíða aðeins með að staðfesta áætlun morgundagsins en vonum að siglt verði til Landeyjahafnar.
Tilkynning verður send út í kvöld eða fyrramálið, ekki síðar en um 07:00. Biðjum farþega okkar góðfúslega um að sýna þessu skilning,�?? segir í tilkynningunni.