Prestar Landakirkju vilja þakka gefendum fyrir að hugsa til þeirra sem hafa leitað til kirkjunnar fyrir þessi jól. Það er óhætt að segja að öll hin mörgu framlög hafa komið að notum. Útgerð og áhöfn Hugins VE gaf 500 þús til styrktarsjóðs prestakallsins og Barnahags Vestmannaeyja, Ísfélag Vestmannaeyja gaf 500 þús til Hjálparstarfs kirkjunnar og jólamatargjafir, Oddfellowreglan á Íslandi gaf gjafabréf í verslanir í Eyjum.