Bjartey Gylfadóttir man ekki eftir sér öðruvísi en að hafa haft mikinn áhuga á öllu sem viðkemur myndlist og gerði hún mikið af því að teikna og mála myndir þegar hún var barn. Það var svo árið 2002, þá 19 ára gömul sem hún fór á sitt fyrsta myndlistarnámskeið og byrjaði í kjölfarið að mála og þá var ekki aftur snúið. Hún var útnefnd sem bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2013 og hefur haldið þó nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Eyjarnar eru hennar helsti innblástur auk þess sem ýmis önnur viðfangsefni skjóta upp kollinum í listsköpuninni t.d. má þar nefna stjörnumerki sem eru teiknuð í mandöluformi.
Bjartey er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og starfar sem myndlistarkennari í Grunnskóla Vestmannaeyja. Hún er með kennarapróf frá Háskólanum á Akureyri með myndlist sem sérgrein, ásamt því hefur hún sótt mörg myndlistarnámskeið. Í grunnskóla fékk Bjartey myndmenntakennslu sem ýtti undir áhugan. Þar voru kennarar eins og Hulda Ólafsdóttir og Sigurdís Harpa Arnardóttir sem kenndu henni.
Skemmtilegt og gefandi starf
Það var svo árið 2002 sem Bjartey fór á sitt fyrsta olíunámskeið hjá Steinunni Einarsdóttur, „alls fór ég á fjögur olíunámskeið sem og ég tók eitt teikninámskeið. Einnig hef ég prófað að fara á námskeið í mósaik auk ýmissa annarra myndlistarnámskeiða. Ég hef líka prófað að vinna úr listinni minni í FabLab“ sagði Bjartey og bætti við að einnig væri hún að kenna eitt fag í fablab samhliða myndmenntakennslunni. Bjartey segri starfið vera skemmtilegt og gefandi. „Það er sérstaklega gaman að vinna með unglingum í myndlist, það er hægt að leggja fyrir þau aðeins meira krefjandi verkefni og alltaf einhverjir sem finna sig frekar í faginu en aðrir og þá er gaman að geta ýtt undir það og hjálpað til.“
Blýanturinn aldrei langt undan
Bjartey reynir að gefa sér tíma hér og þar til þess að skapa og er blýanturinn aldrei langt undan. Auðvelt er fyrir hana að fara í vinnustofuna, en Bjartey er með stórt herbergi í húsinu þar sem hún vinnur, „það er mjög gott að hafa aðstöðu heima því því þá er maður alltaf til staðar fyrir börnin og auðvelt að grípa í blýantinn þegar tími gefst til, þó það sé ekki nema hálftími” sagði Bjartey, en hún og eignmaður hennar Sæþór Gunnarsson eiga tvö börn saman.
Náttúran hérna gefur mér innblástur
Eyjarnar hafa alltaf spilað stórt hlutverk í verkum Bjarteyjar og fær hún mikinn innblástur úr náttúrunni. „Náttúran hérna gefur mér innblástur og svo finnst mér skemmtilegt að færa eyjarnar í allskonar stíla, svo sem málverk í mismunandi litum, með mismunandi áferð, teikningar, geometrísk munstur og fleira. Þó þetta sé alltaf sama efnið þá eru útfærslurnar allskonar.“ Aðspurð um vinnuferlið sagði Bjartey að þetta komi í bylgjum, „það er alltaf eitthvað ferli í gangi. Ég er yfirleitt með einhverja hugmynd í hausnum og oft fær hún að dvelja þar í svolítinn tíma áður en ég framkvæmi hana og svo að lokum helli ég mér í verkefnið á fullu.“
Allt sem við kemur listsköpun finnst Bjarteyju vera skemmtilegt „mér finnst mjög áhugavert og skemmtilegt að nýta mér tæknina við listsköpun eins og ég er að gera þessa dagana þó maður sé alltaf að vinna með grunnhugmynd sem varð til á blaði,“ en þarna er Bjartey að vísa í skrauthringi og aðra hluti sem hún hefur verið að gera úr plexí gleri í FabLab. Í ár hefur Bjartey meðal annars unnið að því búa til stjörnumerki og kemur hugmyndin upphaflega þegar hún var að teikna mandölur. „Mér finnst mjög gaman að teikna mandölur og þaðan kom innblásturinn að stjörnumerkjunum. Ég byrjaði á að gera stjörnumerki fyrir okkur í fjölskyldunni og svo gerði ég hin merkin í kjölfarið. “
„Þetta er mín hugleiðsa og er afskaplega gefandi og gaman. Það jafnast ekkert á við að gleyma sér í verkinu, vera að mála eða teikna og svo allt í einu eru liðnar tvær klukkustundir áður en þú veist af. Aðrar hugsanir fá algjörlega frí á meðan og þú gleymir þér í verkinu,“ sagði Bjartey að endingu.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér verk Bjarteyjar geta gert það á facebook síðu hennar.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst