Þetta er mín hugleiðsla og er afskaplega gefandi og gaman

Bjartey Gylfadóttir man ekki eftir sér öðruvísi en að hafa haft mikinn áhuga á öllu sem viðkemur myndlist og gerði hún mikið af því að teikna og mála myndir þegar hún var barn. Það var svo árið 2002, þá 19 ára gömul sem hún fór á sitt fyrsta myndlistarnámskeið og byrjaði í kjölfarið að mála og þá var ekki aftur snúið. Hún var útnefnd sem bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2013 og hefur haldið þó nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Eyjarnar eru hennar helsti innblástur auk þess sem ýmis önnur viðfangsefni skjóta upp kollinum í listsköpuninni t.d. má þar nefna stjörnumerki sem eru teiknuð í mandöluformi.

Bjartey er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og starfar sem myndlistarkennari í Grunnskóla Vestmannaeyja. Hún er með kennarapróf frá Háskólanum á Akureyri með myndlist sem sérgrein, ásamt því hefur hún sótt mörg myndlistarnámskeið. Í grunnskóla fékk Bjartey myndmenntakennslu sem ýtti undir áhugan. Þar voru kennarar eins og Hulda Ólafsdóttir og Sigurdís Harpa Arnardóttir sem kenndu henni.

Skemmtilegt og gefandi starf 
Það var svo árið 2002 sem Bjartey fór á sitt fyrsta olíunámskeið hjá Steinunni Einarsdóttur, „alls fór ég á fjögur olíunámskeið sem og ég tók eitt teikninámskeið. Einnig hef ég prófað að fara á námskeið í mósaik auk ýmissa annarra myndlistarnámskeiða. Ég hef líka prófað að vinna úr listinni minni í FabLab“ sagði Bjartey og bætti við að einnig væri hún að kenna eitt fag í fablab samhliða myndmenntakennslunni. Bjartey segri starfið vera skemmtilegt og gefandi. „Það er sérstaklega gaman að vinna með unglingum í myndlist, það er hægt að leggja fyrir þau aðeins meira krefjandi verkefni og alltaf einhverjir sem finna sig frekar í faginu en aðrir og þá er gaman að geta ýtt undir það og hjálpað til.“
 
Blýanturinn aldrei langt undan 
Bjartey reynir að gefa sér tíma hér og þar til þess að skapa og er blýanturinn aldrei langt undan. Auðvelt er fyrir hana að fara í vinnustofuna, en Bjartey er með stórt herbergi í húsinu þar sem hún vinnur, „það er mjög gott að hafa aðstöðu heima því því þá er maður alltaf til staðar fyrir börnin og auðvelt að grípa í blýantinn þegar tími gefst til, þó það sé ekki nema hálftími” sagði Bjartey, en hún og eignmaður hennar Sæþór Gunnarsson eiga tvö börn saman.

Náttúran hérna gefur mér innblástur 
Eyjarnar hafa alltaf spilað stórt hlutverk í verkum Bjarteyjar og fær hún mikinn innblástur úr náttúrunni. „Náttúran hérna gefur mér innblástur og svo finnst mér skemmtilegt að færa eyjarnar í allskonar stíla, svo sem málverk í mismunandi litum, með mismunandi áferð, teikningar, geometrísk munstur og fleira. Þó þetta sé alltaf sama efnið þá eru útfærslurnar allskonar.“ Aðspurð um vinnuferlið sagði Bjartey að þetta komi í bylgjum, „það er alltaf eitthvað ferli í gangi. Ég er yfirleitt með einhverja hugmynd í hausnum og oft fær hún að dvelja þar í svolítinn tíma áður en ég framkvæmi hana og svo að lokum helli ég mér í verkefnið á fullu.“
Allt sem við kemur listsköpun finnst Bjarteyju vera skemmtilegt „mér finnst mjög áhugavert og skemmtilegt að nýta mér tæknina við listsköpun eins og ég er að gera þessa dagana þó maður sé alltaf að vinna með grunnhugmynd sem varð til á blaði,“ en þarna er Bjartey að vísa í skrauthringi og aðra hluti sem hún hefur verið að gera úr plexí gleri í FabLab. Í ár hefur Bjartey meðal annars unnið að því búa til stjörnumerki og kemur hugmyndin upphaflega þegar hún var að teikna mandölur. „Mér finnst mjög gaman að teikna mandölur og þaðan kom innblásturinn að stjörnumerkjunum. Ég byrjaði á að gera stjörnumerki fyrir okkur í fjölskyldunni og svo gerði ég hin merkin í kjölfarið. “

„Þetta er mín hugleiðsa og er afskaplega gefandi og gaman. Það jafnast ekkert á við að gleyma sér í verkinu, vera að mála eða teikna og svo allt í einu eru liðnar tvær klukkustundir áður en þú veist af. Aðrar hugsanir fá algjörlega frí á meðan og þú gleymir þér í verkinu,“ sagði Bjartey að endingu.

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér verk Bjarteyjar geta gert það á facebook síðu hennar.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.