Óhætt er að segja að Þjóðhátíðin hafi farið einstaklega vel af stað í dag en einmuna veðurblíða er nú í Vestmannaeyjum, sól, hlýtt og hægur vindur. Vindurinn var reyndar öllu meiri á Setningarhátíðinni í dag en það kom ekki að sök vegna hlýindanna. Talið er að um sex þúsund manns séu nú í Herjólfsdal en myndir frá fyrsta degi hátíðahaldanna má sjá hér að neðan.