Nú eru þrjú grafskip, Dísa, Sóley og Perla, í og við Landeyjahöfn þar sem unnið er að dýpkunarframkvæmdum. Ekkert hefur verið hægt að dýpka þar síðan í síðustu viku enda tíðin verið afskaplega slæm. Nú horfir hins vegar betur við og er spáin nokkuð hagstæð næstu daga fyrir dýpkunaframkvæmdir.