Hvað er með þessa Vestmannaeyinga, alltaf rífandi kjaft, hvað haldið þið eiginlega að þið séuð? �?annig hófst einn netpósturinn sem barst á ritstjórnina. Kannski ekki nema von. Vinnslustöðin er með kæru í gangi varðandi sérstaka veiðigjaldið. Saman kærði Ísfélagið og Vinnslustöðin úthlutun á makríl sínum tíma. Vestmannaeyjabær fór í mál vegna sölunnar á Berg-Huginn. Allt mál sem vakið hafa mikla athygli alþjóðar. Allt mál sem koma úr Eyjum.
Fiskistofumálið tröllríður nú öllum fjölmiðlum og einslitar samúðarfréttir fluttar. Eftir hrun misstu þúsundir fólks atvinnu sína, margir fluttu til Noregs og fleiri landa til að hafa vinnu. Aðrir fluttu milli landshluta til að leita sér vinnu. Hér í Eyjum fækkaði íbúum um nokkur hundruð manns eftir sameiningu frystihúsanna á sínum tíma. Fólk leitaði annað eftir vinnu. Fyrirtæki sameinast, flytja, lenda í erfiðleikum. Ekkert er endalaust. Allt er breytingum undirorpið. Fiskistofufólkinu býðst áframhaldandi vinna ef þau vilja flytja til Akureyrar. �?að hefur líka góðan tíma til að leita annarrar vinnu. Hvað er málið?
Flutningur ríkisstofnana útá land er á stefnuskrá núverandi ríkisstjórnar og líka þeirra sem á undan hafa verið. Í sumum málum vill fólk að staðið sé við gefin loforð, þegar það hentar. Fiskistofa átti aldrei að vera staðsett á höfuðborgarsvæðinu, hún er dæmigerð stofnun sem hentar að hafa á landsbyggðinni. Málflutningur sumra fjölmiðla varðandi flutning hennar til Akureyrar er einsleitur og mætti ætla að engir hefðu aðra skoðun en þeir sem andvígir eru flutningi Fiskistofunnar til Akureyrar. �?? Nema kannski Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum, sem hefur verið óhræddur að tjá skoðanir sínar. �?? En öðru nær, Bjarni Hafþór Helgason, fjárfestingastjóri KEA á Akureyri er sama sinnis og Elliði og átelur bæjarstjórann sinn og telur að hann mætti taka starfsbróður sinn í Eyjum til fyrirmyndar og tala fyrir sitt bæjarfélag og landsbyggðina. Tilefnið er pistill sem Elliði Vignisson skrifaði á heimasíðu sína og margir fjölmiðlar hafa birt.
Bjarni skrifar á fésbókarsíðu sína:
�??Hér talar bæjarstjóri (Elliði) fyrir sitt samfélag og landsbyggðina. �?g ætla ekki að hafa nein orð um samanburð við bæjarfulltrúa og bæjarstjóra á Akureyri. Tilkynningin um flutning Fiskistofu til Akureyrar er risavaxinn sigurstund fyrir Akureyri. �?ó sér þess hvergi stað í viðbrögðum forsvarsmanna bæjarins. Fyrir sunnan hefur mönnum leyfst að tala um Akureyri eins og það þurfi áfallahjálp við að flytja þangað. Forsvarsmenn Akureyrar og þingmenn hafa í því samhengi lýst �??skilningi á líðan�?? fólksins,�?? segir hann ennfremur og bætir við: �??Baráttan fyrir flutningi opinberra stofnana út á land hefur staðið yfir í áratugi. Höfuðborgin hefur engan einkarétt á að þiggja allt skattfé Íslendinga til reksturs opinberra stofnana. Loksins kom stórfrétt um þetta baráttumál �?� en viðbrögðin hér �?� guð minn almáttugur.�??
Svo mörg voru þau orð Bjarna Hafþórs.
Kannski er kominn tími til að fólk hætti að biðjast afsökunar á að búa �??úti á landi�??. �?að var t.d. athyglisvert að lesa viðtal við Martin Eyjólfsson, sendiherra Íslands í Genf og fastafulltrúa Íslands hjá EFTA, sem birtist í Eyjafréttum. �?ing EFTA var haldið í Eyjum um næstsíðustu helgi og í viðtalinu kom fram hjá Martin, að mat margra hefði verið að ekki væri hægt að halda svona fund í Eyjum vegna skorts á aðstöðu og þjónustu. Martin segir að í samtölum sínum við fundargesti finni hann mikið þakklæti og einnig er borið lof á fundinn og alla framkvæmd hans. �??�?að er einróma álit allra gesta sem eru bergmundir yfir náttúru Eyjanna og öllu viðmóti sem þeir mættu. Ánægja var með aðstöðuna í Framhaldsskólanum, gisting fær fína einkunn og það kom gestum á óvart hvað hér eru frábærir veitingastaðir. Margir höfðu það á orði við mig að annarri eins gestrisni hefðu menn sjaldan mætt. Allir boðnir og búnir til þess að rétta fram aðstoð og redda málum ef á þurfti að halda.�??