�?urfum ekki að biðjast afsökunar á að búa á landsbyggðinni

Hvað er með þessa Vestmannaeyinga, alltaf rífandi kjaft, hvað haldið þið eiginlega að þið séuð? �?annig hófst einn netpósturinn sem barst á ritstjórnina. Kannski ekki nema von. Vinnslustöðin er með kæru í gangi varðandi sérstaka veiðigjaldið. Saman kærði Ísfélagið og Vinnslustöðin úthlutun á makríl sínum tíma. Vestmannaeyjabær fór í mál vegna sölunnar á Berg-Huginn. Allt […]

Fiskbúð á ný í Eyjum

Jónas �?lafsson og Sæunn Erna Sævarsdóttir opnuðu í vikunni Fiskbarinn að Bárustíg 1 þar sem áður var FabLab. �?au bjóða upp á ferskan fisk, fisrétti tilbúna í ofninn, djúpsteiktan fisk og franskar og sjávarréttasúpur sem hægt að taka með heim eða borða á staðnum. Fiskibarinn er mjög snyrtilegur og þar er hægt að tylla sér […]

Eyjakvöld Blítt og létt hópsins í Höllinni í kvöld

Blítt og létt hópurinn, sem slegið hefur rækilega í gegn á Kaffi Kró undanfarna vetur og spilað í Hörpu og í ráðherraveislu í ár við góðan orðstír, mun troða upp í Höllinni í kvöld. �?etta er að sjálfsögðu frábær upphitun fyrir goslokahelgina og �?jóðhátíðina. Hópurinn stóð fyrir sams konar upphitun í fyrra og þá var […]

Verðskuldaður og uppörvandi sigur

Fyrsti sigur ÍBV í sumar í Pepsídeild karla kom loksins í gærkvöldi, í 10. umferð deildarinnar. Jón �?skar �?órhallsson er grjótharður stuðningsmaður ÍBV og hann var mættur til Keflavíkur í gær að styðja við bakið á sínum mönnum. Hann skrifaði eftirfarandi línur á síðu stuðningsmanna ÍBV á facebook: �?að var ekki mikil bjartsýnin í ÍBV […]

Fyrsti fundur bæjarstjórnar í dag

Bæjarstjórn Vestmannaeyja kemur saman í dag í fyrsta sinn á nýju kjörtímabili. Niðurstaða bæjarstjórnarkosninganna í vor, voru á þann veg að Sjálfstæðisflokkur fékk fimm bæjarfulltrúa en Eyjalistinn tvo. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn eru Elliði Vignisson, Páley Borgþórsdóttir, Páll Marvin Jónsson, Trausti Hjaltason og Birna �?órsdóttir en fulltrúar Eyjalistans eru Jórunn Einarsdóttir og Stefán �?skar Jónasson. […]

Logar í hálfa öld

Hljómsveitin Logar fagnar 50 ára afmæli sínu í ár en af því tilefni halda þeir tónleika og létta sögustund í gömlu Höllinni við Vestmannabraut á morgun, föstudag. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 en aðgangur er ókeypis í boði Vífilfells. Auk Loganna, kemur Tríó �?óris �?lafssonar, ásamt �?óri �?lafssyni fram á tónleikunum og Helgi Tórshamar og Sævar […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.