Logar í hálfa öld
Hljómsveitin Logar fagnar 50 ára afmæli sínu í ár en af því tilefni halda þeir tónleika og létta sögustund í gömlu Höllinni við Vestmannabraut á morgun, föstudag. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 en aðgangur er ókeypis í boði Vífilfells. Auk Loganna, kemur Tríó �?óris �?lafssonar, ásamt �?óri �?lafssyni fram á tónleikunum og Helgi Tórshamar og Sævar Helgi Geirsson flytja Goslokalagið 2014. Til að ýta undir nostalgíuna hjá þeim sem eru á sama aldursskeiði og Logarnir, hafa nokkrir af eldri starfsmönnum Hallarinnar verið kallaðir til. �?annig munu þeir Bragi Í. �?lafsson (Bragi á fluginu) og �?orsteinn Sigurðsson (Steini í Stakkagerði) sjá um dyravörslu og þær �?órsteina Grétarsdóttir og Sigurborg Erna Jónsdóttir (Erna í Gerði) verða sætavísur.
Hljómsveitin Logar var stofnuð í Vestmannaeyjum árið 1964 en upphaflegu stofnendurnir voru Grétar Skaptason, Helgi Hermannsson, Henry A. Erlendsson, Hörður Sigmundsson og �?orgeir Guðmundsson. Sveitina skipa nú bræðurnir Helgi og Hermann Ingi Hermannssynir, Henry, Guðlaugur Sigurðsson, �?lafur Bachmann og unglingurinn í hópnum, �?lafur Guðlaugsson (Sigurðssonar) sem byrjaði að spila með Logum árið 1996.
�??Við hlökkum óskaplega mikið til að fara inn í þetta hús aftur og við erum aðstandendum Hvítasunnu­safnaðarins óendeanlega þakklátir fyrir að gefa hljóm­sveitinni kost á að fagna hálfrar aldar starfsafmæli í Höllinni, sem var um árabil heimavöllur, Loga,” sagði �?lafur í samtali við Eyjafréttir. �??�?að má segja að gamla Höllin sé hinn eiginlegi heimavöllur sveitarinnar, því þar spiluðu Logar stundum 4-5 kvöld í viku og jafnvel var sveitin ræst út á böll ef það var landlega. Höllin á sér náttúrulega ansi merka sögu þegar kemur að tónlist og þarna á sviðinu í Höllinni áttu Logar sín bestu ár í Eyjum.�??
Einskonar saumaklúbbur
50 ár er langur tími í lífi einnar hljómsveitar. Hver hefur verið lykillinn hjá þeim gömlu að halda áfram?
�??Lykillinn af því að halda svona samstarfi úti í hálfa öld er fyrst og fremst ofsalega góður og mikill vinskapur og að menn hafi gaman af því sem verið er að gera. �?etta er einskonar saumaklúbbur sem hittist nokkuð reglulega og eini munurinn samanborið við annan félagsskap er kannski sá, að þessi kemur opinberlega fram.�??
Eins og áður sagði kom �?lafur inn í sveitina síðastur af þeim sem nú skipa hana. Hann neitar því ekki að það hafi verið skrítið að standa allt í einu með þeim á sviðinu. �??�?g er alinn upp á þessari tónlist hjá pabba og hafði starfað sjálfur í tónlist í mörg ár þar á undan. �?g þekkti tónlistina þeirra vel og þá náttúrulega alla afar vel persónulega, enda fékk ég sem krakki að flækjast með á allar æfingarnar og fékk meira að segja að fikta í græjunum. Án efa hafði það mikið um það að segja að ég fékk áhuga á hljóðfæraleik og var eflaust ekki einn um það að fá áhuga á tónlist eftir að hafa fylgst með Logum. Við komum þeim til dæmis skemmtilega á óvart á 40 ára afmælinu þegar við settum saman sveitina Syndir feðranna, sem var eingöngu skipuð sonum Loganna.�??

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.