Til skoðunar að opna hvalaathvarf í Eyjum
Fram kom í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 í gær að Vestmannaeyjabær, í samstarfi við stórfyrirtækið Merlin Entertainment, vinni að því að kanna möguleika á því að koma upp hvalaathvarfi í Vestmannaeyjum og flytja þangað þrjá Belugahvali eða mjaldra sem verið hafa í skemmtigarði í Kína seinustu ár. Í fréttatilkynningu frá Vestmannaeyjbæ segir að verkefnið sé risa skref í ferðaþjónustu í Eyjum og sé í senn dýravelferðarverkefni sem ekki á sinn líka.
“Forsaga þessa máls er að fyrir nokkru keypti Merlin skemmtigarð í Shanghai í Kína þar sem fyrir voru mjaldrar. Merlin, sem á forsendum dýravelferðar er á móti því að hvalir og höfrungar séu teknir úr villtri náttúru sem sýningadýr, fór þá þegar að leita að heppilegri leið til að koma þessum sýningadýrum í ákjósanlegra umhverfi og höfðu fljótlega samaband við okkur hér í Eyjum. Á sama tíma vorum við að leita að heppilegum alþjóðlegum samstarfsaðilum til að styðja við þá uppbyggingu sem hér er unnið að á vettvangi sjávarrannsókna, háskólastarfs og ferðaþjónustu.
Einn hluti af þessu verkefni hefur verið að leita leiða til að segja sögu þessara einstöku dýra, þessarar hvalategundar í heild og annarra staðbundinna sjávardýra. �?ll nálgun að slíku hefur dýravelferð að leiðarljósi og sérstök áhersla lögð á að sýna eðlilegt atferli dýranna og búa þeim sem náttúrulegasta umhverfi. �?annig er saga þeirra sögð af virðingu fyrir dýrunum og þeirra stað í þeirri keðju sem náttúran er. Eitt af því sem er til skoðunar er að koma upp veglegri gestastofu með sædýrasafni á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum þar sem bæði verða til sýnis lifandi fiskar, sögð saga mjaldranna auk þess sem reynt verður að koma upp athvarfi fyrir lundapysjur sem ekki geta lifað í villtri náttúrunni og ýmislegt fl.
Vestmannaeyjabær mun því í samstarfi við Merlin halda áfram að skoða fýsileika hvað þetta varðar og sérstök áhersla er að sjálfsögðu lögð á samvinnu við sjávarlíffræðinga, hvalasérfræðinga, aðila í ferðaþjónustu og fl. sérfróða aðila. Hingað til hefur verkefninu verið vel tekið af öllum þeim sem um það hafa fjallað en eftir sem áður er mikilvægt að hafa í huga að enn eru ljón í veginum og margt sem getur orðið til að hleypa keng í málið. Ekkert er því klappað í stein þótt sannarlega bindum við vonir við að vel gangi hér eftir sem hingað til.
Við hjá Vestmannaeyjabæ erum afar stolt af því að þetta risafyrirtæki sem tók á móti 62 milljónum gesta í fyrra skuli velja okkur sem samstarfsaðila og lítum á þetta sem víðtækt tækifæri fyrir okkur bæði í þróun á þekkingarumhverfinu, háskólastarfinu, hafrannsókum og þá ekki síður sem enn eitt djásnið í þá kórunu sem ferðaþjónustan er hér í Eyjum.”

Nýjustu fréttir

Útgáfutónleikar Vina og vandamanna: Eyjalögin lifa áfram
Sjolag.is í stað veður- og ölduspár á netinu
ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.