Eitt tilboð barst í innanhúsframkvæmdir í Eldheimum en málið var tekið fyrir á fundi framkvæmda- og hafnarráðs. Tilboðið barst frá Steina og Olla ehf og var upp á tæpar 270 milljónir. Kostnaðaráætlun var hins vegar upp á tæpar 250 milljónir og var tilboði Steina og Olla ehf. hafnað. Ráðið fól hins vegar framkvæmdastjóra að ganga til viðræðna við verktaka um framgang verksins en Steini og Olli ehf. sjá um að reisa húsið og klæða það.